fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

„Ég þoli ekki tengdamömmu mína“

Fókus
Sunnudaginn 19. júlí 2020 21:30

Kristín Tómasdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar hún lesanda sem semur ekki við tengdamóður sína.

____________________________________

Ég þoli ekki tengdamömmu mína. Hún er neikvæðasta manneskja sem ég hef kynnst um ævina og skiptir sér af öllu. Maðurinn minn pirrar sig á henni en ver hana alltaf ef ég gagnrýni hana í hans eyru. Hvernig get ég lært að lifa með þessu?

Sæl vinkona

Það virðist svo oft vera annað hvort í ökkla eða eyra þegar kemur að tengdaforeldrum. Stundum eru þeir himnasending, í öðrum tilfellum algjör byrði. Mögulega orsakast það af því að þegar við veljum okkur maka nú til dags þá er lítið verið að kryfja ættartré viðkomandi og tengdaforeldrar eru ekki látnir taka nein próf. Þeir fylgja bara með, hvort sem þú kærir þig um það eða ekki

Skýr mörk mikilvæg

Allar fjölskyldur eru samsettar úr mörgum kerfum. Foreldrakerfi, systkinakerfi, tengdaforeldrakerfi, mæðginakerfi o.s.frv. Til þess að tengslin og samskiptin séu sterk og góð er mikilvægt að mörkin milli þessara kerfa séu skýr. Sem dæmi má nefna að mörkin verða að vera skýr milli barna og foreldra á heimili. Þá er átt við mörk um hver tekur ákvarðanir og ábyrgð eða hver er trúnaðarvinur hvers. Foreldrar taka ábyrgð, þeir geta verið trúnaðarvinir barnanna sinna en börnin eiga ekki að taka ábyrgð á trúnaðarmálum foreldra sinna. Það sama gildir um samskipti við tengdaforeldra, þ.e. sumt kemur þeim við, annað ekki. Þið sem par þurfið að vera vel aðgreind, samstíga og setja skýran ramma varðandi það.

Þegar mörkin eru ekki skýr þá getur sprottið fram markaleysi, eðli málsins samkvæmt. Markaleysi lýsir sér þannig að aðili fer yfir mörk annars aðila. Stundum er það markaleysi af hálfu þess sem brýtur mörkin, stundum af hálfu þess sem setur ekki mörkin.

Maðurinn í lykilhlutverki

Hér leikur maðurinn þinn lykilhlutverk en hann virðist eiga erfitt með að skýra mörkin milli mæðginakerfisins sem hann tilheyrir með móður sinni annars vegar og parakerfisins sem hann er hluti af með þér. Hvenær er viðeigandi að móðir hans fái að hafa skoðanir á ykkar lífi og hvenær ekki? Eins er mikilvægt að bera virðingu fyrir þeim sterku og viðkvæmu tengslum sem mæðginin hafa myndað og getur skýrt vörnina sem maðurinn þinn fer í gagnvart þér þegar þú gagnrýnir móður hans. Sumt má hann gagnrýna þó hann þoli ekki að aðrir geri það.

Orðalagið skiptir máli

Mig vantar forsendur til þess að átta mig betur á eðli málsins. Hverju er tengdamóðir þín að skipta sér af? Hvernig hefur þú reynt að setja henni mörk? Það er hægt að setja mörk með mjög fallegum hætti, þá gæti verið ráð að sýna jákvætt fordæmi gegn stanslausri neikvæðni. Einnig getur það dregið verulega úr varnarviðbrögðum að tjá þína eigin líðan í stað þess að gagnrýna hennar hegðun. Þá meina ég að þú segir t.d. „mér líður eins og þú sért að gera lítið úr mér þegar þú segir að ég eldi vondan mat” í staðinn fyrir “hættu að gagnrýna allt sem ég elda”. Í rauninni ertu að segja nákvæmlega það sama en orðalagið getur skilað þér jákvæðari árangri.

Þú ert fullorðin

Að lokum gæti verið hollt að skoða hvað er jákvætt sem tengdamóðir þín færir ykkur? Elskar hún ykkur? Sýnir hún börnunum umhyggju? Er henni annt um velferð ykkar? Það er viðhorf þitt sem stjórnar líðan þinni. Þú átt auðveldara með að breyta viðhorfi þínu en að breyta tengdamömmu þinni. Ef þú minnir þig reglulega á það sem kemur gott frá henni þá getur verið að líðan þín verði betri.

Mér finnst mjög fyndið hvernig þú orðar spurningu þína varðandi „að læra að lifa með tengdamóður þinni,“ en það er ekkert sem segir að þú þurfir að lifa með henni. Þú ert fullorðin manneskja sem velur hverja og hvernig þú umgengst aðra. Ef umgengni við tengdafólk er svo íþyngjandi að þú kærir þig ekki um það, nú þá getur þú komið því þannig í kring að þú umgangist þau minna. Slíkt er þó alltaf erfiðara en að reyna að ræða og finna lausnir á vandamálunum. Ég vona svo bara að þú einbeitir þér að því að njóta lífsins og mögulega geturðu þannig haft smitandi áhrif á tengdó

________________________________

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og í fullum trúnaði

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig