fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Einu sinni framhjáhaldari ávallt framhjáhaldari?

Fókus
Þriðjudaginn 21. apríl 2020 20:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börn og ástina í nýju fjölskylduhorni. Að þessu sinni beinir Kristín sjónum sínum að framhjáhaldi og svarar spurningunni: Hvað þýðir það fyrir framtíðarsambönd ef maki hefur áður gerst sekur um slíkan trúnaðarbrest?

Einu sinni framhjáhaldari ávallt framhjáhaldari

Um daginn fékk ég spurningu frá vinkonu sem líklegt er að hafi kviknað hjá mörgum sem hafa reynslu af svipuðu. Ég ákvað því að nýta hana hér svo fleiri geti notið góðs af. Spurningin var eitthvað á þá leið að Gunna heldur framhjá maka sínum, Jóni. Þau skilja í kjölfarið og Gunna byrjar í nýju sambandi með Geir. Getur Geir treyst Gunnu almennilega eða er eitthvað til í staðhæfingunni: Einu sinni framhjáhaldari, ávallt framhjáhaldari?

Stutta svarið

Stutta svarið er: Sá sem heldur framhjá gerir það ekki endilega aftur.

Lengra svarið

Lengra svarið er að þú getur ekki byggt upp traust þitt til maka út frá hegðun viðkomandi í fyrra sambandi. Fólk er ekki hegðun þess heldur er hegðun birtingarmynd til dæmis líðanar og hugsana fólks og afsprengi aðstæðna. Sá sem heldur framhjá tekur á einhverjum tímapunkti ákvörðun, sem ég er ekki að réttlæta, en við þurfum að setja þetta val í samhengi við annað sem máli skiptir.

Framhjáhald ekki bara í slæmum samböndum

Framhjáhald á sér stað í góðum samböndum, veikum samböndum, löngum samböndum, samkynhneigðum samböndum og í menningarheimum þar sem fólk getur lagt líf sitt í mikla hættu við að halda framhjá maka sínum. Sá sem heldur framhjá getur komið sjálfum sér á óvart. Áður hafði viðkomandi mögulega talið sig ólíklegan til slíkra verka og jafnvel fordæmt aðra fyrir sambærilega framkomu.

En ástæðurnar sem liggja að baki geta verið jafn margar og við erum mörg og hvert framhjáhald er ólíkt öðru. Þá hefur það reynst vel að skoða og reyna að skilja hegðun fólks út frá aðstæðum þess, reynslu, kynslóðararfi og sjálfsbjargarráðum svo eitthvað sé nefnt. Stundum er ástæðan einfaldlega sú að fólk kann ekki önnur bjargráð til þess að slíta sambandi. Stundum er framhjáhald það sem fyrir viðkomandi var haft í æsku á milli foreldra. Siðferðismörk okkar liggja á ólíkum brautum og svo vilja sumir fá meira frelsi en aðrir í samböndum.

Margir hugsa „ef einhver heldur framhjá mér, þá er ég farin/n“. Hið eðlilegasta mál, enda vill enginn vera særður. En þegar á hólminn er komið þarf að taka tillit til fleiri breytna. Ég hef séð dæmi þess að framhjáhald hafi verið ákveðið „gæfuspor“ í parsambandi og skapað upphafið að samtali og nýjum tímum sem annars hefðu ólíklega átt sér stað. Ég er ekki að réttlæta eða mæla með framhjáhaldi, en það er enginn framhjáhald.

Sá sem heldur framhjá getur samt verið til staðar þegar á reynir, verið fyndinn og sjarmerandi, góður vinur, hugrakkur og uppátækjasamur. Sami aðili er kannski góður ferðafélagi og frábært foreldri. Viðkomandi gæti verið reiðubúin til að gangast við gjörðum sínum, bæta fyrir þær, læra af þeim og passa að þær endurtaki sig ekki. Slíkt höfum við margoft séð. Gunna er ekki framhjáhaldið. Hún er í dag í parsambandi við Geir, sem er byggt á allt öðrum grunni, við aðrar aðstæður og þar er líklega annað samskiptamynstur og ný tilfinningatengsl uppi á borðinu.

Traust er lykillinn

Traust er lykilforsenda í góðu sambandi, þar þarf fókusinn að vera frekar en að festast í atburðum sem við vorum ekki hluti af. Við breytum þeim ekki, en við þurfum að hlusta eftir því hversu mikið traust við sjálf skynjum. Ég myndi telja það afar ólíklegt til velfarnaðar að byggja upp traust til maka út frá samskiptum viðkomandi við fyrrverandi maka. En það er vel hægt að bæta og byggja upp betra traust á öðrum forsendum í núverandi sambandi ef vilji er fyrir því.

_____________

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og undir fullum trúnað

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
Fókus
Fyrir 3 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“