fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Ekki missa afFókus

Margmála ljóðakvöld í netheimum á laugardaginn: Ætlar þú að vera með?

Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 20. mars 2020 21:00

Svona var þetta í fyrra. Í ár verður þetta allt á internetinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkomubannið hefur ómæld áhrif á ýmsa viðburði sem átti að halda um trissur allar. Margir hafa aflýst eða frestað viðburðum, en sumir hafa aðlagað viðburði sína að ástandinu.

Harpa Rún.

Árlegt margmála ljóðakvöld sem Bókabæirnir austanfjalls og Gullkistan standa fyrir er einn af þeim viðburðum sem færður hefur verið inn á internetið. „Við sáum fram á að við gætum ekki haldið kvöldið á eðlilegan hátt sökum samkomubanns. Því mun kvöldið fara fram í netheimum að þessu sinni,“ segir Harpa Rún Kristjánsdóttir, forsvarsmaður viðburðarins ásamt Jóni Özuri.

Norræni margmálamánuðurinn stendur frá 21. febrúar, alþjóða degi móðurmálsins til 21. mars, sem bæði er alþjóðlegur dagur ljóðsins en einnig baráttudagur gegn rasisma. „Margmála ljóðakvöldið er nú staðsett á Facebookviðburðinum „Rafrænt! Margmálaljóðakvöld Bókabæjanna og Gullkistunnar“. Ljóðakvöldið hefst á miðnætti í kvöld, 20. mars og mun standa fram til kl. 23:30 á laugardagskvöld.

„Það er öllum frjálst að legga sitt af mörkum og deila atriðum á viðburðinum. Við erum að leita að ljóðskáldum sem skrifa á hvaða tungumáli sem er, hvort sem það er íslenska eða eitthvað annað tungumál. Ljóð getur verið frumsamið, nýtt eða gamalt, eftir uppáhalds skáld, vinsælt skáld o.s.frv. Einnig hafa þýðendur lesið úr verkum sínum og flutt hafa verið ýmis skemmtiatriði tengd ljóðlistinni og móðurmálinu (frelsi til túlkunar algjört). Það sem mig langar að gera í ár er að biðja ykkur öll um myndbönd af ykkur – sem tengjast efninu. Það má: Lesa sín eigin ljóð á einu eða fleirum tungumálum, lesa uppáhalds ljóð á mörgum tungumálum, lesa eigin þýðingar, lesa ljóð um margmálagjörninginn, hvers kyns ljóðagjörningar eru vel þegnir, einnig er velkomið að deila ljóðum á öðrum formum, svo sem prentuð eða í ljósmyndaformi og margt fleira,“ segir Harpa.

Harpa Rún veitir nánari upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“