

Marga lesendur hefur eflaust dreymt um að geta lesið hugsanir eða hafa innbyggðan lygamæli, þó svo sömu lesendur vonist efalaust líka til þess að aðrir búi ekki yfir þessum eiginleikum. Lygar eru hluti af lífinu og hafa sumir gert sér starfsferil úr því að reyna að bera kennsl á lygar eða blekkingar. Þá einkum aðilar á sviði löggæslu. Nokkrir fyrrverandi starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, og alríkislögreglunnar, FBI, hafa tekið sig til og gefið út bækur um hvernig bera megi kennsl á lygar, sennilega vegna þess hversu marga dreymir um að geta það. DV tók saman nokkur ráð sem hafa birst í þeim ritum. Þó er vert að hafa í huga að sérfræðingum ber saman um að það sé engin 100% áreiðanleg leið til að bera kennsl á lygara. Atferli fólks getur farið eftir bakgrunni þess og reynsluheimi og jafnvel getur verið samfélagslegur munur á því hvernig fólk bregst við streitu, eða gefur til kynna blekkingar. Eftirfarandi upptalning er því aðeins í dæmaskyni en ef viðmælandi þinn sýnir mörg af þessum einkennum þá máttu líklega með réttu efast um orð hans. Eins gætir þú, ef þú áformar að ljúga, nýtt þér þennan lista til að vita hvað þú ættir ekki að gera, þó svo við ráðum lesendum að sjálfsögðu frá því.
1 Komdu á óvart
Manneskja sem reynir að blekkja þig hefur að líkindum reynt að undirbúa sig fyrir þær spurningar sem þú gætir spurt. Jafnvel gæti lygarinn hafa gengið svo langt að undirbúa svörin fyrirfram. Prófaðu að spyrja viðkomandi óvæntra spurninga og sjáðu hvernig þeim tekst að svara þeim.
2 Endurteknar spurningar
Ef viðmælandi þinn endurtekur spurninguna sem þú beindir til hans þá gæti það verið merki um að hann sé að vinna sér tíma á meðan hann semur svarið.
3 Hlustaðu meira en þú talar
Þeir sem segja ósátt eiga það til að tala af sér. Það er tilhneiging hjá þeim til að tala meira en þeir sem segja satt í viðleitni til að selja lygina. Þeir gætu líka notað óþarflega nákvæmar atvikalýsingar eða flóknari setningar. Hafðu huga að það hvernig fólk talar getur litast af andlegu ástandi þess. Streita lætur fólk tala hraðar og hærra og með hærri tíðni.
4 Ræskingar og hósti
Ef viðmælandi þinn hóstar eftir að hann svarar spurningu þá er ekkert grunsamlegt við það. Hins vegar getur ræsking eða hósti ÁÐUR en spurningu er svarað verið merki um óþægindi, kvíða, og þar með mögulega lygi.
5 Hvernig er Nei-ið
Ein góð leið til að bera kennsl á lygar er að veita því athygli hvernig viðkomandi segir „Nei“. Manneskja sem beitir blekkingum gæti sagt nei og litið undan, sagt nei en kinkað kolli, sagt mjög langt nei, hikað áður en hún segir nei eða hálf sungið nei-ið.
6 Já eða nei spurning
Já eða nei spurningar kalla á já eða nei svör. Þegar fólk getur ekki eða vill ekki svara með já eða nei þá getur það gripið til málalenginga. Eins ef viðkomandi hefur svar við slíkri einfaldri spurningu með „sko“ þá getur það verið merki um að verið sé að gefa svar sem spyrjandi var ekki að búast við.
7 Af hverju ætti ég að trúa þér?
Þegar fólk er að segja sannleikann þá á það í engum vandræðum með að svara þessari spurningu með „Vegna þess að ég er að segja satt“. Lygarar eiga aftur á móti erfiðara með slíkt svar og eru líklegri til að svara með setningum á borð við „Því ég er heiðarleg manneskja“, „Þú þarft ekki að trúa mér frekar en þú vilt“, „Ég græði ekkert á því að ljúga“ , „Til hvers ætti ég að ljúga?“.
8 Biddu um að fá söguna á afturábak
Þeir sem segja satt eiga það til að bæta við smáatriðum og muna fleiri staðreyndir þegar þeir endurtaka sögu sína. Lygarar hins vegar hafa lagt tilbúna sögu á minnið og reyna að halda henni eins. Ef þig grunar að einhver sé að ljúga, biddu þá viðkomandi að rekja atburðarásina í öfugri tímaröð.
9 Augnsambandið
Það er útbreiddur misskilningur að lygarar eigi erfiðara með að halda augnsambandi en aðrir. Þvert á móti reyna þeir sem eru að selja lygi oft alveg sérstaklega að viðhalda miklu augnsambandi til að virka sannfærandi.
10 Varirnar og hálsinn
Þegar við þrýstum vörum okkar saman þá er það oft merki um að eitthvað neikvætt sé að eiga sér stað. Að snerta á sér hálsinn, sérstaklega miðjuna á viðbeininu, er merki um stress, kvíða eða hræðslu. Manneskjur eiga það til að fela þetta með því að laga á sér bindið eða fikta í hálsmeni.
