fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

„Maðurinn minn er steinaldarmaður! […] Geta menn lært rómans?“

Fókus
Miðvikudaginn 1. júlí 2020 21:00

Geta menn lært rómans ? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Í þessari viku tekur Kristín fyrir hvernig kynda megi undir rómantíkinni á heimilinu.

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _

„Maðurinn minn er steinaldarmaður! Hann er frábær faðir og virkilega góður við okkur öll, en áttar sig ekki á mikilvægi þess að halda neistanum við í sambandinu. Hann spyr mig alltaf hvað ég vilji í jóla- og afmælisgjafir og virðist engan veginn skilja að blómvöndur, smá „surprise“ eða einlæg skilaboð myndu breyta miklu fyrir mig. Geta menn lært rómans???“

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _

Tjáning borgar sig

Sæl. Takk fyrir góða spurningu. Stutta svarið er já. Þú getur kennt manninum þínum hvaða merkingu þú leggur í rómans og hvað þú sérð fyrir þér til þess að halda neistanum í sambandinu. Ef þú vilt að ég taki hann í kennslu væri það sennilega ekki vænlegt til heilla.

Langa svarið er alltaf að tjáning borgar sig. Hvernig líður þér og hvað þarftu? Þér líður eins og neistinn sé að slokkna og þú þarft meiri rómantík. Hvernig líður manninum þínum með það og hvað þarf hann? Þetta eru voldugar spurningar.

Svo er vert að hafa í huga að það er afar ólíkt hvað fólk upplifir sem rómantík og sömuleiðis að það er hægt að halda neistanum í sambandinu gangandi án þess að rómantík komi þar við sögu. Skrítið?

Tveir verða einn

Í sumum ástarsamböndum byggir neistinn á losta, nánd, ástríðu, eða blöndu af þessu öllu saman. Í þínu sambandi þarftu meiri rómantík til þess að halda glóðunum heitum.

Þegar fólk er spurt hvenær það laðast mest að maka sínum þá eru svörin að sjálfsögðu misjöfn, en þau eiga það mörg hver sammerkt að þau tengjast óvissu eða einhverju sem myndar fjarlægð. Nokkuð sem hljómar þversagnakennt því í ástarsambandi felst skuldbinding, þar sem báðir aðilar vilja tilheyra og finna fyrir því að þeir séu teymi. Tveir verða einn.

Margir nefna að þeir laðist helst að maka sínum þegar makinn geislar. Í því felst að makinn er glaður og öruggur, en það liggur ekki endilega fyrir hvers vegna. Það er eitthvað dulið á bak við þessa orðnotkun. Þá nefna margir að þegar makinn er í burtu þá er þráin eftir viðkomandi hvað mest. Nokkuð ljóst að það sem er ekki til staðar er eftirsóknarvert. Sumir segja líka að þegar makinn kemur þér á óvart verði hann / hún meira aðlaðandi. Allt sem er óljóst, óvenjulegt eða öðruvísi.

Öryggiskenndin mikilvæg

Þú nefnir að maðurinn þinn spyrji þig alltaf hvað þig langar í og að fyrir vikið sé hann steinaldarmaður sem kunni ekki að halda neistanum gangandi. Það gæti einmitt orsakast af því að þú þráir að hann sé pínu dulur og ekki eins og opin bók.

Ég leyfi mér að giska á að hann sé einmitt upptekin af því að hafa allt uppi á borðum og spyrji þig fyrir vikið hvað þú viljir í afmælisgjöf, til að veita sér og þér öryggiskennd.

Fyrir honum er rómantík sennilega eitthvað allt annað en óvissa. Getur verið að honum finnst rómantík ekki mælast í blómvöndum?

Ég er alls ekki að dæma þig, ég vil heldur benda þér á að þú þráir að þrá manninn þinn meira. Til þess gæti hann þurft að vita hvað liggur þar að baki, að það sé gott að vita af öryggi hans, en þér þætti vænt um meiri spennu. Þar er hægt að leika sér og gætir þú jafnvel sýnt fordæmi á þessu sviði gagnvart honum.

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _

 

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt