Fréttakonan Birta Björnsdóttir hefur átt góðu gengi að fagna í sínu fagi og sér um erlendar fréttir á RÚV eins og fagmaðurinn sem hún er. Birta er dóttir leikstjórans Björns Brynjúlfs Björnssonar, sem einnig hefur gert gott mót á sínum vettvangi. Hann leikstýrði sjónvarpsseríunni Flateyjargátunni, sem sýnd var á RÚV, sem og þáttunum Mannaveiðum og kvikmyndinni Kaldri slóð.