fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Græðgi – Heimska

Eyjan
Sunnudaginn 5. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, birti grein nú um páskana sem ber fyrirsögnina GRÆÐGI. Við fyrstu sýn kom manni í hug að hún ætlaði að fjalla um tvöfalda tekjuöflun sína frá opinberum stofnunum en hún sagði ekki af sér störfum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í byrjun árs 2025 þegar hún var kjörin á Alþingi heldur hélt áfram vel launuðum störfum fyrir Hafnarfjörð en þáði samhliða tæpar tvær milljónir í laun á mánuði sem þingmaður. Aðrir sveitarstjórnarmenn sem kjörnir voru á þing um leið og Rósa sögðu sig strax frá störfum í sveitarfélögum sínum. En græðgin stýrði gerðum Rósu þannig að hún hélt launum og störfum bæði á þingi og í bæjarstjórn – sem þykja þó full störf, hvort um sig!

Í Heimildinni þann 12. nóvember 2025 sagði: „Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, var með hærri laun en bæði formaður eigin flokks og forsætisráðherra, fyrir að sitja bæði á þingi og sem formaður bæjarráðs og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hún lauk störfum hjá Hafnarfirði í lok október, og fellur þar með um tæpa milljón í tekjum.“

Orðið á götunni er að heppilegra hefði verið fyrir Rósu að hún hefði sleppt því að birta grein undir fyrirsögninni GRÆÐGI, því að enginn núverandi þingmaður hefur sýnt viðlíka græðgistilburði í seinni tíð og Rósa gerði með framkomu sinni í fyrra. Hún sýndi hrokafulla framkomu með því að takast á hendur þingmennsku sem er fullt ábyrgðarstarf sem margir sækjast eftir en fáum hlotnast. Hún hefur ekki getað sinnt 100 prósent starfi í þinginu samhliða störfum sínum fyrir Hafnarfjörð langt fram eftir árinu 2025. Rósa lét stjórnast af græðgi og mætti frekar skammast sín fyrir það heldur en að birta skrif þar sem aðrir eru vændir um græðgi.

Annað mál er að efni greinarinnar stenst enga skoðun, en hún gengur út á að að ríkisstarfsmenn hafi í stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar sýnt græðgi gagnvart fyrirtækjum og almenningi hvað innheimtu tekna til ríkisins varðar. Bæði stjórnvöld og opinberir starfsmenn fást við það vandasama verkefni að freista þess að vinna upp innviðaskuld fyrrverandi vinstri stjórnar Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar. Það er dýrt að bæta fyrir vanrækslusyndir kyrrstöðustjórnar þeirra og því verkefni sinnir þetta fólk af samviskusemi en ekki illum vilja.

Orðið á götunni er að næst þegar Rósa ákveður að ryðjast fram á ritvöllinn færi best á því að hún leitaði leiðsagnar hjá yfirveguðum aðstoðar-og stuðningsmönnum.

Ekki er hægt að halda því fram að formanni Samtaka ferðaþjónustunnar, Pétri Óskarssyni, hafi heldur tekist vel upp í viðtali við Vísi nú um helgina. Þar hélt hann því blákalt fram að stjórnvöld ynnu gegn íslenskri ferðaþjónustu. Það eru stór orð frá formanni í svo mikilvægri atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Ferðaþjónusta hefur vaxið gríðarlega á síðustu 15 árum og gegnt lykilhlutverki í að endurreisa efnahag Íslands eftir bankahrunið árið 2008. Fjöldi erlendra ferðamanna sem heimsækja Ísland hefur tífaldast á þessu árabili og það hefur haft mikil og góð áhrif fyrir efnahag þjóðarinnar. Þessi mikli fjöldi hefur einnig aukið álag á alla innviði þjóðarinnar mjög mikið þannig að oft hefur reynst erfitt að standa undir álaginu. Vegakerfi landsins og samgöngukerfið allt hefur til dæmis ekki getað fylgt þessari þróun eftir. Núverandi ríkisstjórn hefur einsett sér að freista þessa vinna upp hluta af þeirri miklu innviðaskuld í samgöngum sem fyrri ríkisstjórn skildi eftir sem viðfangsefni fyrir ný stjórnvöld eftir að fyrri ríkisstjórn var hafnað í kosningunum þann 30. nóvember 2024.

Orðið á götunni er að Pétur Óskarsson hefði átt að sjá sóma sinn í að horfa á stöðu mála af víðsýni en ekki út frá þröngum hagsmunum ferðaþjónustunnar einnar. Það er verk að vinna og allir verða að leggja sitt af mörkum til þess að hið opinbera geti bætt aðstöðu í landinu, meðal annars vegakerfið sem landsmenn og erlendir gestir nota í vaxandi mæli. Pétur Óskarsson getur ekki leyft sér að tala eins og núverandi ríkisstjórn sé að reyna að skemma fyrir og brjóta niður það mikla og góða uppbyggingarstarf sem þjóðin hefur staðið að með ferðaþjónustunni á umliðnum árum.

Pétri er væntanlega eins farið og mörgum sem vilja láta ríkið fjárfesta og framkvæma sem mest, hvort sem er í bættu vegakerfi, betra aðgengi að ferðamannastöðum eða öðru sem til heilla horfir og auka tekjuöflun vegna þess. Þá er það gamla viðhorfið að það sé allt í lagi að hækka skatta – en bara ekki hjá mér, heldur einhverjum öðrum.

Orðið á götunni er að forystumenn í atvinnulífinu sem velja að ráðast að stjórnvöldum með dylgjum og skætingi verði ekki teknir alvarlega. Pétur Óskarsson þarf ekki að vænta þess að ná árangri í hagsmunagæslu fyrir greinina með þessum hætti. Formenn samtaka velja að rökræða við stjórnvöld og þoka málum þannig áfram samtökum sínum í hag, ef þeir telja að betur þurfi að gera. Annað er beinlínis heimska. Kjánalegar upphrópanir og dónaskapur skila yfirleitt engu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið: Línur teknar að mótast sex vikum fyrir kosningar – Samfylkingin líklegur sigurvegari kosninganna

Orðið: Línur teknar að mótast sex vikum fyrir kosningar – Samfylkingin líklegur sigurvegari kosninganna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?