fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Eyjan
Föstudaginn 13. mars 2026 06:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir rúmlega þrjátíu árum síðan seldist antík-kommóða á uppboði hér á landi. Kaupandinn var ljósmóðir á Akureyri sem keypti gripinn í því skyni að koma honum aftur í réttar hendur. Hún þekkti afkomanda upphaflegs eiganda, þá unga móður í sama bæ, og vildi að kommóðan rataði aftur „heim.“

Kommóðan hafði upphaflega verið í eigu Marselíu Friðriksdóttur. Marselía fæddist 23. ágúst 1862 að Þverá í Dalsmynni. Hún giftist Guðna Jónssyni frá Knarareyri, verkamanni og sjómanni í Garðshorni í Flatey á Skjálfanda og þar bjuggu hjónin lengst af. Afkomendur þeirra eru orðnir tæplega átta hundruð talsins og undirrituð er ein þeirra. Hjónin í Garðshorni voru langa-langamma mín og -afi og unga móðirin sem fékk kommóðuna sem ljósmóðirin keypti á uppboðinu á Akureyri var mamma mín.

Kommóðan birtist undirritaðri á æskuheimilinu snemma á tíunda áratugnum. Þá var hún nýkomin úr yfirhalningu, enda illa farin eftir langa ævi. Hún var vandlega gerð upp og lökkuð í antíkbláum lit. Fimmtán árum seinna fékk ég þessa sömu kommóðu sem hefur fylgt mér síðan í gegnum fjölda flutninga. Ég get vottað að viðgerðin var góð þar sem varla hefur sést á henni í gegnum þrjá áratugi og daglega notkun. Kommóðan gegnir í dag hlutverki fatahirslu sonar míns.

Ég hafði heyrt á það minnst að þetta væri ættargripur en var ekki viss um nákvæmlega hvaðan hún kom, enda fjölgar því aftar sem farið er, það er ofsalega mikið til af ömmum og öfum á Íslendingabók.

Þegar sonurinn lokaði sokkaskúffunni full harkalega einn mánudagsmorguninn í febrúar sá ég að ytra byrðið, nýrri og léttari viðarklæðning með antíkbláu lakki, hafði brotnað af. Ég dró nokkra nagla úr til þess að skoða betur hvað leyndist þarna undir. Ég gapti yfir handverkinu sem blasti við. Í dag er meðal-líftíminn á húsgögnum örugglega undir fimm árum. Við ákveðum án þess að hika að hlutirnir séu ónýtir vegna útlits en ekki nýtingar. Gamaldags stól er hent, innrétting rifin niður.

Nokkrum dögum seinna var ég stödd í Góða hirðinum með mömmu minni, klyfjuð bókum þar sem ég þjáist af bókasöfnunaráráttu á lokastigi. Æviskrár MA-inga stóðu rígmontnar á einni hillunni, þarna var einmitt árgangur móðurafa míns. Við drógum út bindi og fundum kallinn, lásum æviágripið. „Þetta er amma þín, sem átti kommóðuna,“ sagði mamma og benti á nafn Marselíu.

Þá var þetta komið í hring. Ég fór heim og sló upp nafninu á Íslendingabók, en greip í tómt. Á endanum fann ég hana, en skráningin samræmdist ekki nafninu í æviskrám MA-inga. Ég fletti þá formóður minni upp í kirkjugarðaskrám. Viti menn, ritháttur nafnsins samræmdist MA-æviskrám. Gaudeamus igitur! Bæði skírnarnafnið og föðurnafnið virtist ritað með öðrum hætti og Marselía virtist hafa breytt því síðar á ævinni, fellt niður fyrra skírnarnafn og kennt sig við uppeldisföður sinn.

Ég hef setið hugsi yfir þessu, þar sem nafn er vissulega ekki bara nafn heldur sérkenni og stór hluti af persónu manns. Ég átta mig á því að Íslendingabók er byggð upp sem gagnagrunnur hjá Íslenskri erfðagreiningu og því er verið að líta til einhvers blóðskyldleika við skráninguna. En þar sem formóðir mín kaus að halda nafninu Marselía Friðriksdóttir ævina á enda og það nafn hefur staðið við gröf hennar síðan í seinna stríði, finnst mér eðlilegast að seinni tíma gagnagrunnar séu ekki að breyta því.

Þetta hefur sömuleiðis vakið mig til umhugsunar um vald okkar yfir sjálfinu eftir dauðann á stafrænni öld. Valdið, í eiginlegri merkingu, er auðvitað ekkert. En það er í höndum ættingja, vina og velunnara að sjá til þess að rétt sé með farið. Á stað þar sem afritunin er endalaus, dreifingin botnlaus og samhengið er gufað upp.

En kommóðan stendur enn og mun standa áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Er Ísland of ríkt til að eiga samleið með öðrum þjóðum?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Er Ísland of ríkt til að eiga samleið með öðrum þjóðum?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Svarthöfði skrifar: Sjálfbær hringrás bullfrétta

Svarthöfði skrifar: Sjálfbær hringrás bullfrétta
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sálarástand sem Þórbergur kallaði: Ruglandi

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sálarástand sem Þórbergur kallaði: Ruglandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Aumingja minkurinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Aumingja minkurinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Nína Richter skrifar: Bridgerton og Bjútí tips

Nína Richter skrifar: Bridgerton og Bjútí tips