fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Eyjan

Svarthöfði skrifar: Góðvinir og listin að vera ósammála sjálfum sér

Svarthöfði
Föstudaginn 5. júní 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athygli Svarthöfða var vakin á því að Salvör Nordal, umboðsmaður barna, virðist ósátt við að nafni föður hennar sé blandað í umræðu um mögulega aðild landsins að ESB og, eftir atvikum, upptöku evru.

Það sem rekur Salvöru af stað í þessu efni er grein eftir Þorstein Pálsson sem birtist á Eyjunni í gær þar sem hann vitnar til ritaðra orða Jóhannesar Nordal. Svarthöfða sýnist að óþarfi sé að rekja þau orð en séu einhverjir í vafa er þeim bent á grein Þorsteins. Sömuleiðis geta menn kynnt sér færslu Salvarar á Facebook sem mbl.is fjallaði um síðla gærkvölds.

Svarthöfða sýnist óumdeilt að Jóhannes heitinn hafi skrifað og látið birta það sem eftir honum er haft. Sé lögfræðilegum aðferðum beitt telst það nokkuð traust heimild um skoðanir og viðhorf hins látna Seðlabankastjóra. Hins vegar verður ekki hið sama sagt um það sem Salvör rekur um hvað faðir hennar er sagður hafa sagt henni í síðari tíma samtölum feðginanna, en hún segir: „… hann lét margoft í ljós þá skoðun í samtölum að hann teldi það ekki rétt fyrir Ísland að taka upp evru.“

Svarthöfði er hlessa á þessum viðbrögðum Salvarar og finnst sérkennilegt og allt að því smekklaust af henni að blanda sér með þessum hætti í umræðuna og veitast að þeim sem rekur óumdeild orð Jóhannesar – enda vissi hann ekki betur en ágætt væri á milli þeirra Þorsteins og Salvarar.

En það er fleira skrýtið að mati Svarthöfða. Nú hefur Morgunblaðið gert grein fyrir því að einn erlendra höfunda skýrslunnar um kosti í gjaldmiðlamálum fyrir Ísland, sé ósammála sjálfum sér. Höfundurinn, Hilde C. Bjørnland, prófessor í hagfræði við norska viðskiptaháskólann segir í samtali við Morgunblaðið að fullyrðing ráðuneytisins sýni fram á að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli sé hugarfóstur ráðuneytisins en ekki skýrsluhöfunda.

Svo er haft eftir henni í fréttinni að bent hafi verið í skýrslunni á fleiri kostnaðarþætti en kosti núverandi fyrirkomulags. Þetta skilur Svarthöfði ekki.

Svarthöfði er ekki hagfræðingur og hefur lengst af verið illa við tölur og alla talnameðferð. Hann sér þó ekki betur en svipað gæti átt við um prófessorinn og telur einstakt afrek að geta verið ósammála sjálfum sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Vonin býr á rannsóknarstofunum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Vonin býr á rannsóknarstofunum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Alexandra segir Hildi gera dýr mistök með þessu: „Það er alveg ótrúlega…ógeðslegt einhvern veginn“

Alexandra segir Hildi gera dýr mistök með þessu: „Það er alveg ótrúlega…ógeðslegt einhvern veginn“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Trump er ekki bara tilviljun – hann er afurð raunverulegra aðstæðna

Albert Jónsson: Trump er ekki bara tilviljun – hann er afurð raunverulegra aðstæðna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Alltaf Framari

Óttar Guðmundsson skrifar: Alltaf Framari