fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“

Eyjan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Pálsson greinir frá því í pistli sínum á Eyjunni í morgun að stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins hefði lýst Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem svikara fyrir það að hún hóf samstarf við Dag B. Eggertsson um pólitískan hlaðvarpsþátt.

Þorsteinn segir að fyrir honum sé ekkert eðlilegra en að sjálfstæðismaður og jafnaðarmaður stofni til rökræðna um utanríkismál Íslands. Það viðhorf sem birtist í skrifum stuðningsmanns flokksins lýsi breytingum á pólitísku landslagi:

„Áður var það aðalsmerki sjálfstæðismanna að eiga málefnalegt samstarf við jafnaðarmenn um utanríkisstefnu Íslands. Nú er það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki.“

Þorsteinn rennir yfir sögu alþjóðlegs samstarfs Íslendinga, inngönguna í NATO og EFTA, og gerð samningsins um Evrópska efnahagsssvæðið. Þar hafi ólíkir flokkar komið saman að verkum og endurspeglað hugmyndafræðilega samstöðu yfir miðjuna í utanríkismálum. Sú samstaða hafi snúist um aukna samvinnu í varnar- og efnahagsmálum til að tryggja viðskiptafrelsi.

Þetta hafi verið kjarninn í sjálfstæðisstefnunni en í dag keppist Sjálfstæðismenn við að elta popúlískar áherslur Miðflokksins í utanríkismálum sem miði að niðurbroti Evrópusambandsins og þar sem gæti stuðnings við MAGA-hreyfingu Trumps Bandaríkjaforseta:

„Nú fer Miðflokkurinn fyrir utanríkispólitískum popúlisma yst á jaðrinum til hægri. Hann fylgir MAGA-hreyfingunni í Bandaríkjunum og vill leysa upp Evrópusamstarfið eins og hún. Þar með yrði mikilvægasta efnahagssamstarf Íslands, EES-samningurinn, úr sögunni.

Miðflokkurinn styður árásir Bandaríkjanna á Evrópuvæng NATO og hefur fylgt óskiljanlegum stríðsrekstri þeirra í Miðausturlöndum, sem veldur efnahagslegum skaða á Íslandi eins og víða annars staðar.

Miðflokkurinn staðhæfir að leiðtogar bandalagsþjóða í NATO og á innri markaði Evrópusambandsins vilji brjóta niður fullveldi Íslands og stela auðlindum þess.

Þegar forsætisráðherra bauð forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, stærsta viðskiptasvæðis Íslendinga, til samtals hér heima var því líkt við launráð og undirferli, sem stappaði næst landráðum.“

Þorsteinn segir að nýir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins keppist við að yfirbjóða þessa popúlísku stefnu Miðflokksins. Sé það mikil umbreyting frá fyrri stefnu flokksins.

Grein Þorsteins má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu