fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Allar stöðvar Orkunnar fá alþjóðlega umhverfisvottun  

Eyjan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 13:21

Orkan við Suðurmörk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkan hefur fengið  alþjóðlega ISO  umhverfisvottun á rekstri allra þjónustustöðva sinna um allt land og er það í fyrsta sinn sem eldsneytisfyrirtæki hlýtur slíka vottun fyrir allar þjónustustöðvar sínar.

Vottunin staðfestir að Orkan starfar samkvæmt viðurkenndu umhverfisstjórnunarkerfi sem uppfyllir strangar kröfur um ábyrgð, eftirlit og stöðugar umbætur í umhverfismálum.

Um er að ræða umhverfisvottun ISO 14001 sem er veitt af British Standard Institution. ISO 14001 er einn mikilvægasti alþjóðlegi staðallinn á sviði umhverfisstjórnunar og byggir á því að fyrirtæki geti sýnt fram á í verki að það fylgi öllum lögum og reglugerðum sem tengjast starfseminni, greini og stýri umhverfisáhrifum og hafi virkt innra eftirlit.

Vottunin staðfestir markvisst eftirlit sem haft er með rekstri þjónustustöðva Orkunnar , reglulegar mælingar og skráningar sem staðfesta að rekstur stöðvanna sé í samræmi við kröfur, skýrar væntingar til birgja og verktaka og öfluga Orkuvakt sem tryggir að stöðvarnar séu snyrtilegar og að viðhaldi sé sinnt kerfisbundið um allt land.

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar. Mynd: Saga Sigurðardóttir

„Þessi vottun er viðurkenning fyrir þá vinnu sem unnin hefur verið innan Orkunnar til að gera umhverfismál að órjúfanlegum hluta af daglegum rekstri. Hún staðfestir þá vegferð sem við höfum verið á og við munum nýta hana áfram til góðra verka í nánu samstarfi við  viðskiptavini og samfélagið.“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.

Orkan hefur ásett sér að vera leiðandi í umhverfismálum á orkumarkaði. Vottunin er  hluti af þeirri vegferð og undirstrikar skuldbindingu Orkunnar gagnvart viðskiptavinum, samfélaginu og umhverfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Verra en þegar við gengum Noregskonungi á hönd 1264 – þjóðaröryggismál að íslensk skip séu skráð hér

Eyjólfur Ármannsson: Verra en þegar við gengum Noregskonungi á hönd 1264 – þjóðaröryggismál að íslensk skip séu skráð hér
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur