fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Angela Árnadóttir skrifar: Fjárfestum í kennurum

Eyjan
Miðvikudaginn 30. október 2024 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sýnum kennurum virðingu. Við kunnum okkar fag og við vinnum okkar vinnu. Við erum ekki löt og ekki sjúk í löng frí. Við erum til staðar fyrir nemendur 24/7 alla daga ársins og erum alltaf tilbúin að tala, hugga og leysa vandamál sama hvað klukkan slær. Við erum í rauninni aldrei í fríi og alltaf á samfélags vaktinni. Við erum heimsmeistarar í að hlaupa langa ganga með kaffibollann í hendinni án þess að sulla og samt kunnum við að stoppa til að brosa til litla þín og segja góðan daginn. Við vitum nefnilega að þú kannt svo vel að meta brosið og þú þarft virkilega á því að halda, elsku þú.

Koma svo; Styðjum kennara því að við erum fólkið sem tökum utan um litla þig og pössum upp á að þurrir vettlingar mæti í skiptifatakassann á morgun. Við pössum líka upp á að þú fáir að borða í nesti, jafnvel þó að nestið hafi gleymst. Við pössum líka upp á að hlúa að þér sem manneskju og reynum eftir bestu getu að bjóða þig velkominn út í hinn stóra heim. Við pössum að fylgja þér út í frímínútur hvernig sem viðrar og fylgjumst með þér í leik. Tryggjum það að þú komist inn í vinahópinn. Við pössum líka að þú verðir umburðarlynd manneskja með því að hleypa öllum að. Við kennum þér að hlusta á hina og virða ólíkar skoðanir.

Hjálpa þú okkur að kenna samfélaginu að kennsla skiptir máli. Hérna er lítil dæmisaga: Eplabóndinn sem hlúir að blóminu sínu og vaktar trén sín öllum stundum með ást og hlýju veit vel að einhver mun síðan taka þessi epli og meðhöndla þau með misjafnri virðingu. Sum eplin munu eflaust fá á sig mar og þess vegna mögulega aldrei lenda á fallegu heimili um jólin. Önnur epli munu verða heppnari og fá möguleika á því að glansa í höndunum á barni í nestistímanum. Vel pússuð og þakklát sínu hlutskipti í lífinu. Sama hvað verður þá gerir eplabóndinn dag hvern sitt besta. Stundum sefur hann ekki nætursvefn vegna þess að veðurspáin ógnar eplunum og þá þarf að grípa til aðgerða. Hann gætir þeirra öllum stundum, á of heitum dögum og líka þegar mögulega frystir að vori. Hann trúir því og sér það fyrir sér hvernig þessi epli verða einhvern daginn mikilvæg næring fyrir aðra, og hann veit þau munu líka verða gleðigjafar fyrir þá sem fá að njóta þeirra.

Gerið það elsku vinir að horfa til sólar. Við eplabændurnir munum á meðan hlúa að eplunum ykkar og vonandi rata þau í ykkar hendur ómarin og glansandi rauð. Að því vinnum við á hverjum degi. Nú er klukkan 20:00. Ég (sem vil helst bara vera í fríi) ætla að vinda mér í það að undirbúa dásamlega skemmtilegan tíma fyrir listasöguna í næstu viku, þar sem ég kem til með að flétta inn í myndlistarsöguna: Tónlistarsögu, ástir og ævintýri. Því að lífið er ferðalag og mitt starf er að tryggja það að mínir nemendur haldist vel forvitnir um lífsins ævintýri. Við erum stödd í tímabili rómantíkur og ég var að fara yfir ljóðin þeirra. Eitt ljóðið var rómantískt ljóð um samband nemandans við blýantinn. Þjáningar og gleðistundir komu fram í þessu ljóði. Allt í takt við rómantíska tímann. Þakklæti er mér efst í huga. Það er ekki til neitt betra starf. En mikið væri gott að þurfa ekki að telja hrísgrjónin ofan í pottinn á hverjum degi. Vonandi eru allir hér ekki fátækari en svo að vera sammála því. Styðjum kennara!

Höfundur er myndlistarmaður og kennari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun