fbpx
Þriðjudagur 05.desember 2023
Eyjan

Jón Ingi fengið nóg: „Þetta getur bara endað á einn veg og það er með ósköpum“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 2. október 2023 11:00

Jón Ingi Hákonarson segir að draumurinn um gluggapóstslaust ævikvöld fjarlægist með hverjum deginum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þessi bíltúr getur bara endað á einn veg og það er úti í skurði,“ segir Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Jón Ingi skrifar aðsenda grein á vef Vísis þar sem hann viðrar áhyggjur sínar af íslensku efnahagsástandi. Vísar hann meðal annars í nýleg orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra.

„Ég held að það sé bara best að þið takið verðtryggt lán, já og lengið í lánunum. Þetta eru ráðleggingar Seðlabankastjóra til millistéttarinnar. „Það gengur bara svo vel í efnahagslífinu að við ráðum ekki neitt við neitt, við erum fórnarlömb velgengninnar.“

Jón Ingi segir að þetta sé einmitt kjarni málsins; millistéttin borgi alltaf brúsann hvort heldur gangi vel eða illa. Þannig hafi millistéttin borgað fyrir hrunið með því að tapa nánast öllu eigin fé, með því að greiða hærri vexti, hærra verð fyrir matarkörfuna, hærri skatta og þá hafi margir misst heimili sín.

„Undanfarið höfum við búið við mikið þensluástand í atvinnulífinu. Þenslan kallar á mikinn mannafla sem eykur umsvif og þar með hagvöxt en hagvöxtur á Íslandi, þegar horft er til hagvaxtar á hvern íbúa, er með því minnsta sem gerist eða 0,7% og þetta gerist í tæplega 8% verðbólgu og 9% stýrivaxtastigi.“

Jón Ingi líkir þessu við að keyra býsna hratt á sumardekkjum í hálku.

„Bílstjórinn segir að hraðinn og hálkan komi sér ekki við og aðstoðarbílstjórinn er búinn að missa trúna á bremsubúnaði bílsins.“

Hann bætir við að þessi bílferð geti bara endað úti í skurði. „Bílstjórinn vonar að skurðurinn verði mjúkur, millistéttin í aftursætinu spennir beltin og bíður þess sem koma skal.“

Jón Ingi bendir á að flestar efnahagsbólur byrji á fasteignamarkaði og það hafi til dæmis sést þegar síðasta bóla sprakk árið 2008.

„Í dag eru afleiðingar hagstjórnarinnar þær að húsnæðisskortur verður hér viðvarandi vandamál um langt skeið. Þetta getur bara endað á einn veg og það er með ósköpum. Allt tal um annað er bull í bala þegar stefna stjórnvalda er að gera ekki neitt en vona það besta.“

Hann segir að nú sem fyrr muni millistéttin borga brúsann og það muni hún geri með fátækt á efri árum. Hún sjái enga leið út úr vandanum aðra en að fara að ráðum seðlabankastjóra og lengja í lánum sínum og greiða afborganir af láninu sínu fram í andlátið.

„Draumurinn um gluggapóstslaust ævikvöld fjarlægist með degi hverjum. Krónan er grimmur húsbóndi og heimtar sitt. Hún heldur fólki í hárri greiðslubyrði allt of lengi. Það eru grimm örlög allt of margra að falla úr millistétt í fátækt eða þrældóm á efri árum,“ segir Jón Ingi sem endar grein sína á þessum orðum:

„Millistéttin hefur alltaf borgað brúsann, efsta lag samfélagsins hefur tök á því að forða verðmætum sínum áður en skellurinn kemur. Efsta lagið flýgur brott á vængjum vænna skúffufyrirtækja, vitandi vits að millistéttin mun standa sína plikt og taka svo vel á móti erlendum gjaldeyri frá efsta laginu þegar allt er farið í skrúfuna. Og svo hefst hringrásin aftur……………….og aftur…………….og aftur…………………..“

Fréttin hefur verið uppfærð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Að bíta í skottið á sér

Steinunn Ólína skrifar: Að bíta í skottið á sér
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fær 4.197 krónur fyrir 35 tíma vinnu – „Hvernig getum við hagað okkur svona?“

Fær 4.197 krónur fyrir 35 tíma vinnu – „Hvernig getum við hagað okkur svona?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Las ráðherra svarið ekki yfir?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Las ráðherra svarið ekki yfir?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vill skattleysi eldri borgara – segir þá búna að leggja sitt af mörkum á langri ævi

Vill skattleysi eldri borgara – segir þá búna að leggja sitt af mörkum á langri ævi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Fullveldisráðstefna Dansk-íslenska félagsins í Veröld, húsi Vigdísar

Fullveldisráðstefna Dansk-íslenska félagsins í Veröld, húsi Vigdísar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ný vörn gegn hökkurum í augsýn – Keystrike hefur tryggt sér 150 milljón króna fjármögnun

Ný vörn gegn hökkurum í augsýn – Keystrike hefur tryggt sér 150 milljón króna fjármögnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áttatíu starfsmenn missa vinnuna hjá Controlant

Áttatíu starfsmenn missa vinnuna hjá Controlant
Eyjan
Fyrir 1 viku

Uppsagnir hjá Controlant – Starfsmenn boðaðir á fund hver á fætur öðrum til uppsagnar

Uppsagnir hjá Controlant – Starfsmenn boðaðir á fund hver á fætur öðrum til uppsagnar