fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Þorsteinn segir áfellisdóminn yfir Bjarna ekki síður þungan bagga fyrir Katrínu – stjórnsýslulögin og siðareglurnar heyra undir forsætisráðherra

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. október 2023 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnsýslan á öllum stigum framkvæmdar lokaðs útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka á síðasta ári fékk falleinkunn hjá Ríkisendurskoðun, bankaeftirliti Seðlabankans og loks Umboðsmanni Alþingis, sem komst að þeirri niðurstöðu að Bjarna Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, hafi skort hæfi til að taka ákvörðun um söluna.

Stjórnsýslan getur varla verið verri,“ skrifar Þorsteinn Pálsson af kögunarhóli á Eyjunni.

En ef til vill gætirðu af gæsku og náð
gleymt þessu sjálfur, vor Herra.“

Hann segir ljóðlínur úr þessu kvæði eftir Stein Steinarr hafa komið upp í huga sér „þegar forsætisráðherra stýrði blaðamannafundi formanna stjórnarflokkanna í Eddu, húsi íslenskunnar, í tilefni af því að þeir höfðu þá í fulla viku ráðið með sér hvernig bregðast skyldi við því áliti umboðsmanns Alþingis að fjármálaráðherra hafi skort hæfi við sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.“

Ljóðlínurnar eru undir yfirskriftinni: „Hjálpræðisherinn biður fyrir þeim synduga manni Jóni Sigurðssyni fyrrverandi kadett.“ Hann hreinsaðist sem alkunna er af sérhverri synd og komst til herrans heim.

Þau höfðu sannarlega, rétt eins og Jón Kristófer kadett, fundið lyktina „af forrétti þeim, sem frelsarinn hefur á borðum.“

Þorsteinn segir álitaefnið um skort á sérstöku hæfi hafa komið strax upp við söluna.

Ábyrgðin hjá forsætisráðherra

Fjármálaráðherra hafi talið frá upphafi að fjarri öllu lagi væri að hann hefði í þessu tilviki átt að gæta að sérstöku hæfi sínu og leiðbeiningarskyldu samkvæmt stjórnsýslulögum.

Allar götur síðan hefur hann starfað í því skjóli að forsætisráðherra var sammála honum um að grundvallarregla stjórnsýslulaganna ætti ekki við og óþarft hefði verið að leiðbeina Bankasýslunni og undirverktökum um þær lagareglur, sem gilda um sölu á eignarhlutum ríkisins.

Stjórnsýslulögin og siðareglurnar heyra undir forsætisráðherra. Í þessu ljósi er augljóst að áfellisdómur Umboðsmanns Alþingis er ekki síður þungur baggi að bera fyrir forsætisráðherra en fjármálaráðherra. Syndaaflausnin var henni að sama skapi mikilvægari,“ skrifar Þorsteinn.

Hann segir blaðamannafundinn í Eddu hafa snúist um þrennt:

Í fyrsta lagi var þjóðin minnt á hversu vel ríkisstjórnin hefði staðið sig á síðasta kjörtímabili að eigin mati.

Í öðru lagi fékk þjóðin að vita að á sameiginlegum fundi þingmanna stjórnarflokkanna á Þingvöllum, þar sem við trúnni var tekið af lýði, hefðu allar syndir verið afskrifaðar eins og á samkomu hjá Hernum forðum.

Í þriðja lagi var þjóðin upplýst um að staðfesting Umboðsmanns Alþingis á seinustu syndinni hefði gefið forystumönnum stjórnarflokkanna tilefni til að leggja á ráðin um hvernig ljúka ætti átta ára ferli samstarfsins.“

Ekki hafi einu orði verið vikið að þeim brýnu úrlausnarefnum sem stjórnvöld standa frammi fyrir, meðal annars bráðavanda landbúnaðarins, stefnu í sjávarútvegsmálum eða samkomulagi um hvernig ljúka eig sölunni á Íslandsbanka.

Þorsteinn tekur undir með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formanni Viðreisnar sem sagði að í raun og veru væru formenn ríkistjórnarflokkanna að gefa þjóðinni langt nef með þessum boðskap.

Þannig er pólitísk staða stjórnarsamstarfsins eftir sex ár og gagnkvæma aflausn synda.“

Af kögunarhóli í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum