fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Samskip beina bótakröfum að Eimskipi vegna rangra sakargifta

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 27. september 2023 16:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samskip hafa kært til áfrýjunarnefndar samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins  um að leggja 4,2 milljarða sekt á félagið fyrir þátttöku í meintu samráði við Eimskip. Jafnframt ætla Samskip að gera bótakröfu á Eimskip vegna rangra sakargifta í málinu.

Samskip hafa falið Mörkinni lögmannsstofu að sækja bætur á hendur Eimskipi vegna ólögmætra og saknæmra athafna félagsins gagnvart Samskipum. Fyrir liggur að Eimskip hefur í sátt við Samkeppniseftirlitið (SKE) lýst því yfir að félagið hafi átt í samráði við Samskip sem efnt hafi verið til á fundi 6. júní 2008 og í framhaldi þess fundar. Þessi yfirlýsing félagsins er röng og með öllu tilhæfulaus. Þá er það að sama skapi fullkomlega rangt að félögin hafi átt í samráði um breytingar á flutningakerfi, gert með sér samkomulag um skiptingu markaða, um álagningu gjalda eða um afsláttarkjör.

Um er að ræða mjög alvarlega atlögu að Samskipum enda hefur Eimskip með þessu ranglega sakað félagið, sem og núverandi og fyrrverandi starfsmenn félagsins og Eimskips, um ólögmæta og eftir atvikum refsiverða háttsemi. Rangar sakargiftir af þessum toga eru ólögmætar og þær geta einnig verið refsiverðar fyrir þann sem í hlut á. Í þessu tilviki var þeim beint að helsta keppinauti Eimskips og voru augljóslega til þess fallnar að valda búsifjum í rekstri félagsins og hafa óeðlileg áhrif á samkeppnisstöðu félaganna, Samskipum til tjóns.

Lögmenn Samskipa hafa sent forstjóra Eimskips kröfubréf vegna framangreinds þar sem þess er einnig óskað að upplýst verði hvaða stjórnendur eða stjórnarmenn komu að ákvörðun um að undirgangast sáttina við SKE og veita stjórnvaldinu með því rangar upplýsingar.

Máli vísað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála

Jafnframt hafa Samskip í dag skilað inn til áfrýjunarnefndar samkeppnismála kæru vegna ákvörðunar SKE frá 31. ágúst síðastliðnum um að leggja á Samskip 4,2 milljarða króna sekt fyrir þátttöku í meintu samráði við Eimskip. Farið er fram á að ákvörðun SKE verði felld úr gildi og að réttaráhrifum hennar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefndinni.

Samskip gagnrýna harðlega ákvörðun Samkeppniseftirlitsins enda er hún efnislega röng og öll málsmeðferðin í brýnni andstöðu við ákvæði samkeppnislaga, sönnunarreglur og fjölmargar grundvallarreglur stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttarins. Félagið telur ljóst að fella verði hina kærðu ákvörðun úr gildi í heild sinni vegna þessara alvarlegu annmarka sem leitt hafi til endurtekinna rangra og haldlausra ályktana stofnunarinnar,“ segir Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa.

Í kærunni er bent á að rannsókn og ákvörðun SKE sé fordæmalaus fyrir margar sakir. Þær kenningar og ályktanir sem settar eru fram í ákvörðun SKE séu í grundvallaratriðum án tengsla við gögn málsins og raunveruleg atvik í rekstri skipafélaganna sem sökuð séu um samráð. Þá hafi SKE endurtekið misfarið með efni gagna og horft fram hjá sönnunargögnum og réttmætum skýringum Samskipa og Eimskips sem ekki hafi fallið að kenningum stofnunarinnar. Þá er með sektarfjárhæðinni farið gegn fjölmörgum réttarreglum og ljóst að til grundvallar þeirri ákvörðun liggja engin málefnaleg sjónarmið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir