fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Eyjan

Trump bregst við húsleitinni – Birtir dularfullt myndband – „. . . and the best is yet to come“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 10. ágúst 2022 07:00

Donald Trump.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir nokkrum klukkustundum birti Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, myndband sem þykir ansi dularfullt og þó ekki. Birting myndbandsins er líklega hluti af viðbrögðum hans við húsleit FBI á heimili hans í Mar-a-Lago á mánudaginn.

Orðrómar hafa lengi verið uppi um að Trump hyggist bjóða sig fram til forseta 2024. Hann hefur ekki gefið ákveðið svar um þetta en hefur nokkrum sinnum gefið sterklega í skyn að hann muni bjóða sig fram. Hann hefur til dæmis sagt að hann hlakki til eftir tvö ár og í júlí sagði hann að hann eigi aðeins eftir að finna út úr hvenær hann muni hefja kosningabaráttu sína.

Í myndbandinu, sem Trump birti á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social, segir Trump stuðningsfólki sínu að Bandaríkin hafi verið í frjálsu falli síðan Joe Biden var kjörinn forseti og að landið stefni í ranga átt. „Við erum hnignandi þjóð,“ segir Trump undir dökkum tónum þrumuveðurs og rigningar í upphafi þessa fjögurra mínútna langa myndbands.

Hann heldur síðan áfram að romsa upp hversu slæm staðan er í mörgum málaflokkum í Bandaríkjunum þessa dagana. „Mesta verðbólgan í rúmlega 40 ár,“ „orkuverð í sögulegu hámarki“, „Bandaríkin betla olíu hjá Venesúela og Rússlandi,“ segir Trump áður en dökkklæddur maður stingur hníf í bakið á viðskiptavini í verslun.

„Við erum þjóð sem á margan hátt er orðin að athlægi,“ segir Trump um leið og myndbandi breytist úr svarthvítri mynd yfir í lit og við tekur falleg tónlist, hlátur og klapp.

„Við munum aldrei gefa neitt eftir, við munum aldrei gefast upp og við munum aldrei, aldrei svíkja ykkur,“ segir hann að lokum þegar myndbandinu er að ljúka en í lokin birtist textinn: „. . . and the best is yet to come“.

Það er erfitt að túlka myndbandið öðruvísi en svo að Trump hyggist bjóða sig fram til forseta á nýjan leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Þingið afber varla þessa ríkisstjórn

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – Þingið afber varla þessa ríkisstjórn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hlýða Víði í kjörklefanum? – „Maður bara trúir því ekki að nú eigi að misnota Covid og hetjur þess til að auka fylgið“

Hlýða Víði í kjörklefanum? – „Maður bara trúir því ekki að nú eigi að misnota Covid og hetjur þess til að auka fylgið“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilja vita hvert milljarðar borgarbúa fóru

Vilja vita hvert milljarðar borgarbúa fóru
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu

Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu