fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Björn segir að jólin verði enn dýrari í ár – „Svona er staðan því miður“

Eyjan
Fimmtudaginn 11. ágúst 2022 14:10

Þessi hundur er mögulega með fjárhagsáhyggur út af jólunum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka, segir tímabært fyrir landsmenn að fara að huga að jólunum vegna þess að í ár verði þau dýrari en við höfum mátt venjast. Í raun sé tvennt í stöðunni – að draga úr kostnaði við jólin, eða vera dugleg að spara það sem eftir lifir árs.

Björn ritar um þetta í pistli sem birtist hjá Vísi í dag. Þar segir hann að miðað við veðrið þessa daganna taki hreinlega á að vera beinn í baki. „En það eru þó góðar 9 gráður úti, rennandi blautt og sumarfríið búið og óþarfi að láta sér leiðast þegar við höfum yfir nógu að kvarta.“

Hann segir að fyrst sumarið hafi ákveðið að forða sér megi það bara eiga sig og ætlar Björn þá að fara að undirbúa næsta hápunkt ársins- jólin.

„„Andlega er ég tilbúinn í jólin, en fjárhagslega er ég ekki tilbúinn í jólin“ sagði einhver við gott tilefni, sennilega þegar þau voru handan við hornið, en vakti í leið athygli á nokkru mikilvægu.“ 

Björn minnir á að á jólunum eigi fólk að slappa af og njóta.

„Á jólunum eigum við nefnilega að slappa af, lesa og drekka kakó þar til við þurfum að opna glugga. Það er þó erfitt að njóta þeirra almennilega ef peningarnir eru stanslaust potandi í okkur, spyrjandi hvernig og hvenær við ætlum að borga fyrir þetta allt saman.“ 

Bara tvennt í stöðunni

Ekki eigi það að koma á óvart að landsmenn eyði að jafnaði talsvert meira í mat, drykki og gjafir í desember en aðra mánuði. Þá gangi bókhaldið á heimilinu stundum ekki upp.

„Hin hefðbundnu heimilisfjármál, sem hjá mörgum dansa rétt á núllinu við hver mánaðamót, ganga þá oft ekki upp og jólin eru tekin að láni með tilheyrandi óþægindum og áhættu næstu mánuðina. Þetta er ekkert nýtt. Þó svo jólunum hafi verið fagnað hér á landi í ríflega þúsund ár og líklega enn lengur að heiðnum sið koma þau alltaf jafn mikið á óvart.“

Sum heimili hafi svigrúmið fyrir þessi óvæntu útgjöld, en hjá flestum hafi jólin mikil áhrif á fjárhaginn. Jólin í ár verði sérstaklega erfið þar sem ofan á reikninginn mun bætast verðbólga og hækkanir á vöruverði.

„Ársverðbólga mælist nú rétt undir 10% hér á landi og hún mun án vafa auka kostnaðinn sem fylgja mun óbreyttum jólum. Við því eru bara tvö svör; að reyna að draga úr kostnaði við jólin í ár eða vera duglegri að spara það sem eftir lifir árs.“ 

Enn meiri hækkanir mögulega í kortunum

Frá jólunum í fyrra hafi svínakjöt hækkað um 10 prósent í verði og brúnaðar kartöflur um 4 prósent Hann nefnir fleiri dæmi:

„Malt og appelsín er 5% dýrara. Ætlar þú að baka? Hveiti er 12% dýrara en þegar þú hnoðaðir síðast í lagtertu, smjörið 7%, egg 6% og mjólk 5% dýrari. Það sem meira er, það eru enn nokkrir mánuðir í jólin og líkur á enn frekari verðhækkunum, nema kannski á hveitinu sem hefur til allra hamingju lækkað talsvert í verði erlendis að undanförnu. 

Svona er staðan því miður.“ 

Jólin séu alltaf dýr og verði enn dýrari í ár. Það sé þó betra að horfast í augu við það núna frekar en þegar jólaundirbúningurinn stendur sem hæst.

„Og ekki úr vegi að nota þetta átakanlega niðurdrepandi veður til undirbúnings svo tryggja megi sem notalegust jól“ 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG