fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Eyjan

Natan segir að nú sé rétti tíminn til að ræða aðild Íslands í ESB – „Fullkominn tími“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 16. mars 2022 14:00

Natan telur að nú sé fullkominn tími til að ræða inngöngu Íslands í ESB

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Núna er ekki rétti tíminn til að ræða þetta segja þeir sem ekki vilja breyta. Hvort það sé húsbóndi sem nennir ekki að fara í það endurgera baðherbergið eða stjórnmálaleiðtogi sem hugnast ekki þær breytingar sem verið er að skoða þá er svarið alltaf að núna sé ekki tími til breytinga.“

Svona hefst pistill sem Natan Kolbeinsson, ritari Uppreisnar – Ungliðahreyfingar Viðreisnar, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. Tilefni pistilsins er það að Natan telur að nú sé rétti tíminn fyrir Ísland að ræða aðild að Evrópusambandinu.

„Sjaldan er þessi hræðsla við breytingar og hvað þá umræðuna um breytingar meiri en þegar rætt er um Evrópusambandið. Allt frá því utanríkisráðherra sem þá var úr röðum Framsóknar sleit aðildarviðræðum árið 2015 án þess að ráðfæra sig þing né þjóð hefur svarið frá andstæðingum alltaf verið að núna sé ekki tími til að ræða þessa hluti,“ segir Natan.

„Fyrst var það reyndar þannig að allt var að ganga svo vel á Íslandi, hagvöxtur var að aukast og allir voru sáttir. Svo kom heimsfaraldur og þá var sko alls ekki tími til að ræða þetta þar sem við urðum að einbeita okkur að því að kljást við álagið á heilbrigðiskerfinu og áfallinu sem samkomutakmarkanir höfðu á hagkerfið okkar.“

Natan segir að ástæðan fyrir því að stjórnmálamenn segi að „núna sé ekki rétti tíminn“ til að ræða um Evrópusambandið sé hræðsla við umræðuna. „Ástæðan afhverju ríkisstjórn Bjarna og Sigmundar Davíðs spurði ekki fólkið hvort það vildi halda aðildarviðræðum áfram var einfaldlega sú að þeir þorðu ekki umræðunni um kosti og galla mögulegrar aðildar okkar að sambandinu,“ segir hann.

„Án umræðunar er nefnilega alltaf hægt að kasta fram fullyrðingum sem oft eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. Þegar við leyfum umræðunni að eiga sér stað fara nefnilega staðreyndir að koma í ljós með öllum sínum kostum og göllum en ekki bara getgátur um hvað gæti eða gæti ekki orðið.“

Segir að öll myndu segja já þegar þau sjá hvað stendur til boða

Natan segir að núna sé fólk að sjá hvernig heimurinn getur breyst á stuttum tíma og að óvissan um framtíðina sé mikil. „Á þannig tímum átaka leita ríki til hvors annars til að finna stuðning og þar er Ísland á sama báti með öllum öðrum ríkjum heims,“ segir hann.

„Núna er því fullkominn tími, þegar ekki bara við á þessari litlu fámennu eyju stöndum á tímamótum heldur öll ríki Evrópu, að taka þessa umræðu lyfta henni upp og ræða raunverulega kosti og galla aðildar.“

Natan segir að ríkisstjórnin vilji ekki taka umræðuna um Evrópusambandið því þegar umræðan byrjar og Íslendingar sjá hvað stendur til boða muni þeir alltaf svara já við inngöngu í sambandið. „Aðild Íslands að Evrópusambandinu tryggir ekki bara öryggi Íslands í síbreytilegum heimi heldur dregur það úr völdum smákónga og hagsmunaaðila sem hafa allt of lengi fengið að ráða því sem þau vilja ráð hér á landi,“ segir hann.

„Núna er því rétti tíminn til að ræða aðild okkar að Evrópusambandinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nú þarf hægri hagstjórn og vinstri velferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health

Linda verður aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Health
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Mun ekki hika við erfiðar ákvarðanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“

Deilt um lántökur Kópavogsbæjar – „Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr – Fagmaður í fyndni – vill færa forsetann til Akureyrar á sumrin