fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Eyjan

Stofna sjóð til að flýta fyrir kolefnishlutleysi Íslands

Eyjan
Þriðjudaginn 21. desember 2021 11:16

Aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu um stofnun sjóðs með það markmiði að flýta fyrir kolefnishlutleysi Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvika banki, Kvika eignastýring og Klappir hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um stofnun sjóðs með það markmiði að flýta fyrir kolefnishlutleysi Íslands.

Tilgangurinn með stofnun sjóðsins er að búa til vettvang fyrir fjárfesta að koma saman og fjárfesta í landbótum sem fela í sér mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingar. Ráðgert er að slíkar landbætur verði til að byrja með vottuð skógrækt, en jafnframt koma aðrar mótvægisaðgerðir til greina, svo sem endurheimt votlendis og aðrar aðgerðir til að draga úr losun vegna landnotkunar, samhliða framleiðslu vottaðra kolefniseininga.

Miðað er við að sjóðurinn fjárfesti í landbótum sem gefa af sér vottaðar kolefniseiningar sem heimilt er að skrá í loftslagsskrá og telja gagnvar talþjóðlegum skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum. Þær landbætur sem fyrirhugaðar eru með stofnun sjóðsins eru arðsamar, atvinnuskapandi og styðja við umbreytingulandbúnaðar. Stefnt er að því að sjóðurinn styðji með þessum hætti við þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar, þ.e. efnahag, samfélagið og umhverfis- og loftslagsmál.

Við stofnun sjóðsins er meðal annars horft til 17. heimsmarkmiðs Sameinuðu þjóðanna um samvinnu og samstarf hagaðila (opinbera geirans, einkaaðila og borgaranna) og stuðning þeirra við verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun samfélagsins.

Það er sameiginlegur vilji aðila með viljayfirlýsingunni sem hefur verið undirrituð að vinna að því að greina rekstrarhagræði slíks sjóðs og móta helstu verkþætti sem snúa að heppilegri útfærslu. Stefnt er á að niðurstaða um áframhald verkefnisins liggi fyrir snemma á árinu 2022.

,,Stór hluti þeirra gróðurhúsalofttegunda sem losaðar eru út í andrúmsloftið eiga rætur að rekja til hnignunar vistkerfa. Með landbótum er hægt að binda kolefni, miðla vatni, vernda og byggja upp jarðveg, hreinsa loft, veita skjól og styrkja búsvæði fjölda lífvera. Í landbótum felast líka mikilvæg viðskiptatækifæri, meðal annars í vottuðum kolefniseiningum, sem verða verðmæt auðlind sem hægt verður að selja á alþjóðlegum mörkuðum.  Nýsköpun í grænum iðnaði, fjármálum og landbúnaði verður einn af hornsteinum verkefnisins,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.

,,Loftslagsmál eru án efa mikilvægasta verkefni okkar kynslóðar og ég hef trú á að einkaaðilar séu vel til þess fallnir að finna skynsamar lausnir. Framtak á borð við loftslagssjóðinn getur verið skynsamleg og arðbær leið fyrir fjárfesta til að hafa áhrif. Ísland er í fararbroddi varðandi endurnýjanlega orku og getur einnig orðið leiðandi í loftslagsmálum. Ef vel tekst til geta loftslagsverkefni orðið mikilvægur útflutningsatvinnuvegur í framtíðinni,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku:

,,Kapphlaup er hafið í átt að kolefnishlutleysi í heiminum og er ljóst að það markmið næst ekki nema einkaaðilar leggi sitt af mörkum og vinni saman. Þessi nýi sjóður sem aðilar hafa skuldbundið sig um að kanna rekstrarhæfi á hefur alla burði til þess að vera mikilvægt framlag,sem jafnframt felur í sér raunveruleg og mælanleg áhrif á stöðu loftslagsmála á Íslandi,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi