fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Eyjan

Eiríkur, Freyr og Sigrún ráðin til SORPU.

Eyjan
Fimmtudaginn 16. desember 2021 09:25

Eiríkur Örn, Sigrún og Freyr hafa þegar hafið störf

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur er ráðinn í starf sérfræðings í fræðslu og miðlun, Freyr í starf verkefnastjóra hringrásarhagkerfisins og Sigrún í starf verkefnastjóra á skrifstofu framkvæmdastjóra. Ráðningarnar eru hluti af aukinni áherslu SORPU á fræðslu og miðlun upplýsinga til almennings, þeirrar lykilstöðu sem SORPA er í við innleiðingu hringrásarhagkerfisins á Íslandi og þeirra verkefna sem samlagið tekur þátt í á sviði úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu.

Eiríkur er grunnskólakennari frá Háskóla Íslands að mennt me áherslu á náttúrufræði. Hluta af náminu tók hann í skiptinámi við Háskólann í Stokkhólmi. Eiríkur hefur starfað sem kennari í Vesturbæjarskóla og Laugalækjarskóla, þjónustufulltrúi hjá Orkuveitu Reykjavíkur og starfsnemi hjá Íslandsstofu. Eiríkur er auk þess að ljúka meistaranámi í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.

Freyr hefur starfað sem samskiptastjóri hjá Terra og unnið að ýmsum verkefnum er varða flokkun og endurvinnslu. Hann á að baki áralanga reynslu í fjölmiðlum, lengst af sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. Freyr er með meistarapróf í stafrænni stjórnun frá Hyper Island í Stokkhólmi, B.A. gráðu í mannfræði og almenn kennsluréttindi frá Háskóla Íslands.

Sigrún er með Bs. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Sigrún starfaði sem Data engineering manager hjá CCP, teymisstjóri Novomatic og stýrði innleiðingu á tölvukerfum hjá Actavis og Festi.

Þau hafa öll þegar hafið störf hjá SORPU.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit