fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

„Smásálarhroðinn“ Páll á að halda starfi sínu segir Kolbrún

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 29. október 2021 06:46

Helgi Seljan (t.v.) og Páll Vilhjálmsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór varla framhjá mörgum á dögunum þegar Páll Vilhjálmsson, kennari og bloggari, skrifaði pistil um Helga Seljan, fréttamann hjá RÚV, og andleg veikindi hans og innlögn á geðdeild. Mátti skilja skrif Páls svo að hann telji að þar sem Helgi hefði glímt við andleg veikindi þá væri hann ófær um að sinna starfi rannsóknarblaðamanns og hugsanlega hvaða starfi sem er.

Þessi skrif Páls eru umfjöllunarefni Kolbrúnar Bergþórsdóttur í leiðara Fréttablaðsins í dag sem ber fyrirsögnina „Smásálarhroði“. Þar segir hún að ekki sé hægt að skapa gott samfélag með refsigleði að vopni. „Ákæra á til dæmis ekki að jafngilda sekt og fólk sem segir fáránlega, jafnvel hræðilega hluti, á ekki sjálfkrafa að missa atvinnu sína og lífsafkomu. Í samtíma okkar sjáum við þó ríka hneigð í þessa átt. Refsigleðin er grasserandi og hinn alræmdi dómstóll götunnar telur hana sjálfsagða og eðlilega og réttlætir hana auðveldlega með því að tilgangurinn sé að uppræta illsku og fordóma, sem við viljum náttúrlega ekki búa við,“ segir Kolbrún og bætir við að ekki sé sama hvernig hlutirnir eru gerðir.

Sá sem sé sakaður um alvarlegt brot verði að fá tækifæri til að svara ásökunum þar um í stað þess að vera strax kýldur niður og rúinn ærunni.

„Sá sem talar dólgslega á svo sannarlega skilið að honum sé svarað, en á ekki að þurfa að þola það að vera rekinn úr starfi,“ segir hún og víkur að skrifum Páls um Helga Seljan. Hún segir að helst hafi mátt ráða af skrifum Páls að ekkert mark væri á Helga takandi og að einnig hafi hann talið að skýringin væri fundin á af hverju Helgi gekk svo vasklega fram við rannsókn á málum Samherja, hann væri haldinn þráhyggju.

„Tíminn og orkan sem ákveðnir starfsmenn Samherja hafa eytt í að ata Helga auri, og leggja hann í einelti og vakta ferðir hans, var hins vegar ekki til umfjöllunar hjá Páli. Kannski finnst honum þær aðferðir hafa verið í góðu lagi. Ef svo er þá er það dæmi um afar sérkennilegt hugarfar,“ segir hún.

Hún víkur síðan næst að starfi Páls sem kennara en hann kennir við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. „Páll starfar enn sem kennari, þrátt fyrir skrif sín um Helga Seljan. Einhverjir vildu að hann yrði rekinn úr starfi vegna þeirra. Skólameistari skólans, sem Páll starfar við, er afar ósáttur við skrif hans og gerir athugasemdir við þau, en telur rétt að Páll haldi starfinu. Það er skynsamleg afstaða. Við búum í landi þar sem tjáningarfrelsi á að vera ríkjandi. Páll nýtur þess, eins og hann á að gera. Ekkert breytir því þó að skrif hans um Helga Seljan séu honum til skammar. Þingmaður Samfylkingarinnar, Helga Vala Helgadóttir, orðaði þetta af nákvæmni þegar hún sagði um þau skrif: „Þetta er nú meiri smásálarhroðinn.““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir