fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Lækkun leiguverðs rakin til offramboðs Airbnb íbúða

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 18. júní 2020 13:47

Það er lítið framboð af fasteignum á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiguverð hefur lækkað nokkuð undanfarið, eða um 4,3% síðastliðna þrjá mánuði, samkvæmt tölum Þjóðskrár.
RÚV hefur eftir Vigni Má Lýðssyni, hagfræðingi hjá Leiguskjóli að lækkunin skýrist sennilega af offramboði Airbnb íbúða sem fóru á markað í kjölfar kórónuveirufaraldursins.

„Þessar íbúðir eru yfirleitt fullbúnar sem bendir til þess að þetta séu þessar svokölluðu Airbnb-íbúðir. Þessir aðilar sem eru að leigja út þessar íbúðir eru með allt aðra og hærri ávöxtunarkröfu á sitt eigið fé þannig að þetta lága leiguverð er ekki komið til með að vera til langs tíma þar sem þessar íbúðir munu frekar fara á sölu ef að það rætist ekki úr á ferðamannamarkaðnum,“

segir Vignir.

Hann nefnir að dæmi séu um að leigusalar endurnýji langtímaleigusamninga á lægra verði, en sú lækkun sé ekki varanleg. Sú lækkun hafi hinsvegar orsakað mikla eftirspurn hjá fólki sem hefur til dæmis búið í foreldrahúsum eða í annarskonar leigu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt