fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Uppsagnir eru hafnar í Arion banka – Hundrað sagt upp: „Eftir tæp 15 ár í bankanum skilja leiðir“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 26. september 2019 09:23

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alla viku hafa fjöldauppsagnir hjá Arion banka legið í loftinu. Nú í morgun tilkynnti bankinn að starfsmönnum myndi fækka um eitt hundrað. „Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum,“ segir í tilkynningu.

Uppsagnir virðast hafa byrjað fyrr í þessari viku en kona nokkur sem er nú fyrrverandi starfsmaður bankans skrifaði á þriðjudag: „Allt í lífinu er hverfult og öllu er afmörkuð stund. Eftir tæp 15 ár í bankanum skilja leiðir. Mig langar til þess að nota þennan vettvang til þess að þakka þeim veglegu vinum sem mér hefur hlotnast sú gæfa að eignast á þessum tíma. Þið vitið við hverja ég á,“ skrifar konan.

Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Samkvæmt tilkynningu frá bankanum mun starfsfólki bankans fækka um 12 prósent, eða um 100 manns.

„Skipulagsbreytingarnar eru liður í vegferð bankans að settum markmiðum um 50% kostnaðarhlutfall og  arðsemi eiginfjár umfram 10%. Sviðum bankans fækkar um tvö og ýmis verkefni færast til innan bankans með það að markmiði að einfalda starfsemina. Tekjusvið Arion banka verða þrjú: viðskiptabankasvið, fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið og markaðir. Stoðsvið verða einnig þrjú: fjármálasvið, upplýsingatæknisvið og áhættustýring.

Markmið breytinganna er að styrkja samkeppnishæfni bankans og auka arðsemi eiginfjár. Grunnstefna bankans er óbreytt og mun Arion banki áfram veita alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta og vera í fararbroddi um stafræna bankaþjónustu. Megin breytingin felst í að starfsemi fjárfestingabankasviðs færist á tvö ný svið, annars vegar markaði og hins vegar fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið. Markaðir munu hafa það hlutverk að skerpa áherslur bankans á sviði verðbréfastarfsemi en fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið mun veita fyrirtækjum og stofnunum heildstæða þjónustu varðandi fjármögnun og ráðgjöf. Bankinn mun efla þjónustu við þá sem leita að sem hagkvæmastri fjármögnun m.a. með milligöngu um fjármögnun frá þriðja aðila, svo sem sjóðum og öðrum stofnanafjárfestum,“

segir í tilkynningu.

Starfsfólki bankans mun við þessar breytingar fækka um 12% eða um eitt hundrað. Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þessu.

Hár rekstrarkostnaður og arðsemi ekki næg

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningu að aðgerðirnar séu nauðsynlegar til að tryggja betri arðsemi, þó svo bankinn standi traustum fótum:

„Sterk eiginfjár- og lausafjárstaða Arion banka felur í sér að bankinn stendur afar traustum fótum. Hins vegar er ljóst að rekstrarkostnaður er of hár og skipulag bankans tekur ekki nægjanlega vel mið af núverandi markaðsaðstæðum og þörfum atvinnulífsins. Umhverfi fjármálafyrirtækja hefur breyst mikið á undanförnum árum. Íþyngjandi breytingar á regluverki og sköttum á síðastliðnum áratug hafa leitt af sér mikinn viðbótarkostnað. Það er staðreynd að eiginfjárkröfur og skattar á banka hér á landi eru langt umfram það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur og skerða samkeppnisstöðu þeirra. Jafnframt er samkeppni á fjármálamarkaði að aukast til mikilla muna, t.a.m. frá lífeyrissjóðum, ríkisbönkum, fjártæknifyrirtækjum og minni fjármálafyrirtækjum sem lúta um margt öðrum lögmálum en kerfislega mikilvægir bankar. Vegna þessa hefur arðsemi bankans nú um nokkurt skeið ekki verið nægjanlega góð.

Með þeim skipulagsbreytingum sem við kynnum í dag erum við að bregðast við aðstæðum til að tryggja að bankinn þjóni sínum viðskiptavinum vel á sama tíma og hann skilar hluthöfum arði. Við byggjum á þeim mikla árangri sem hefur náðst á undanförnum árum á sviði stafrænnar þjónustu og sjálfvirknivæðingar og ætlum okkur áframhaldandi forystuhlutverk í framsækinni fjármálaþjónustu. Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að  muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.“

Mannabreytingar

Eftirfarandi skipa framkvæmdastjórn Arion banka: Benedikt Gíslason, bankastjóri, Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri markaða, Gísli S. Óttarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, og Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Staða framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs verður auglýst laus til umsóknar.

Úr framkvæmdastjórn stíga Lýður Þór Þorgeirsson og Rúnar Magni Jónsson en báðir taka við nýjum stöðum innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs. Lýður Þór mun taka við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og Rúnar Magni við starfi forstöðumanns á sviði fjármögnunar fyrirtækja. Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Arion banka og mun stýra lögfræðiráðgjöf á skrifstofu bankastjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir