fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

„Dapurlegar hótanir og mismunun af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 17. júlí 2019 16:18

Björn Snæbjörnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Starfsgreinasamband Íslands (SGS mótmælir harðlega þeirri gróflegu mismunun sem Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) ætlast til að sveitarfélögin sýni gagnvart sínu starfsfólki. Kjaradeila SGS og sveitarfélaganna er í hörðum hnút og var vísað til Ríkissáttasemjara vegna þess að Samninganefnd sveitarfélaganna krafðist þess að SGS félli frá fyrirliggjandi samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda og það yrði ekki rætt í kjaraviðræðunum.“

Svo segir í tilkynningu frá Starfsgreinasambandi Íslands og meðfylgjandi er bréf SÍS sem birt er hér.

Samningaviðræður SGS við sveitarfélög og ríki hafa dregist nokkuð, en samkomulag náðist við aðra samningsaðila en SGS, um að starfsfólk með lausa kjarasamninga fengi eingreiðslu að upphæð 105.000 kr. sem átti að greiðast út þann 1. ágúst sem innágreiðsla fyrir nýjan kjarasamning.

„Samband Íslenskra sveitarfélaga ákvað hinsvegar einhliða að félagsmenn í félögum innan SGS fengu ekki þessa eingreiðslu og hefur sent póst til allra sveitarfélaga þar sem þeim er beinlínis bannað að koma eins fram við alla sína starfsmenn. Hér er greinilega verið að reyna að kúga SGS til uppgjafar og ótrúlegt að sveitarfélögunum finnist það sæmandi að greiða ekki lægst launaða starfsfólkinu umrædda eingreiðslu líkt og öðrum,“

segir í tilkynningu.

Sambandið hefur borið það fyrir sig að eingreiðslan þurfi að tengjast tæknilegum atriðum um endurskoðun viðræðuáætlunar, en SGS segir enga lagastoð fyrir því og aðeins sé um fyrirslátt að ræða.

„Af sama meiði eru yfirlýsingar af hálfu SÍS um að það sé á einhvern hátt óheimilt að ræða stöðuna og deilumálin í fjölmiðlum. Það bendir til þess að þau vita að málatilbúnaður þeirra og rökstuðningur er afar veikur. Næsti viðræðufundur í deilunni er ekki boðaður hjá Ríkissáttasemjara fyrr en 21. ágúst næstkomandi. Í ljósi þess og þeirra einstrengislegu fyrirmæla sem fram koma í pósti sambandsins hefur SGS boðað til sérstaks formannafundar 8. ágúst til að ræða þessa alvarlegu stöðu og ákveða næstu skref. SGS krefst þess að störf og framlag okkar félagsmanna í þágu sveitarfélaganna um land allt verði virt og þeim ekki mismunað með þessum gróflega hætti. Haldi Samband íslenskra sveitarfélaga þessari afstöðu til streitu er hætta á að það þýði hörð átök.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt