fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Telur að Bjarni eigi frekar að rannsaka skattsvik en bótasvik: „Grey maðurinn hefur aldrei hitt fátækt fólk“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 31. maí 2019 09:03

Gunnar Smári.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sagði við Morgunblaðið í dag að nú þyrfti að leita allra leiða til að gera betur í ríkisfjármálunum, og nefndi sérstaklega að nú þyrfti að koma í veg fyrir bótasvik.

Sjá einnig: Ætla að snúa hverri krónu við og leita leiða til að gera betur segir fjármálaráðherra

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi, tekur að Bjarni sé að byrja á röngum enda og vandar honum ekki kveðjurnar, frekar en fyrri daginn:

„Fyrsta verk Bjarna sem fjármálaráðherra 2016 var að draga úr umfangi skattarannsókna þótt vitað væri að erfisbundin skattrannsókn á stærstu fyrirtækjunum og auðugustu einstaklingunum borgar sig ekki bara heldur skilar ríkissjóði miklum tekjum, enda er talið að ríkasta fólkið stingi undan skatti um 1/3 af tekjum sínum,“

segir Gunnar Smári og bætir við:

„Bjarni lagði á sama tíma út í stórátak til að njósna um öryrkja, vegna sannfæringar sinnar um óheiðarlegt fólk sem vildi koma ár sinni vel fyrir borð reyndi að ljúga sig inn á örorkubætur þótt það stundaði á sama stórfellda atvinnusköpun. Þriggja ára þrotlausar rannsóknir fjölda fólks skilaði því að líklega hafði einn maður austur á landi látið hjá líða að tilkynna tekjur sem hann hafði haft af því að gæta tveggja hunda dagspart tvisvar í viku. Á síðu Tryggingastofnunar ríkisins er sérstakur hnappur fyrir fólk að ýta á ef það telur sig gruna að öryrkinn í næsta húsi sé að draga sér örorkubætur án þess að eiga rétt á þeim, eins og öryrkjar séu ekki fátækt fólk með miklar byrðar af sjúkdómi sínum og fötlun, heldur skipulögð glæpastarfsemi. Nær væri að setja svona hnapp á vef Kauphallarinnar, hjá Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði og slíkum stöðum þar sem líklegt er að hin ríku eigi erindi, það er fólkið sem er veldur ríkissjóði mestum skaða með svikum. En Bjarni ætlar í engar slíkar aðgerðir og ekki að efla skattrannsóknir heldur ætlar hann í enn eina herferðina gegn fátæku fólki og öryrkjum.“

Fátækt ekki til á Íslandi

Þá segir Gunnar Smári að Bjarni hyggist sanna að fátækt sé ekki til á Íslandi:

„Grey maðurinn hefur aldrei hitt fátækt fólk og allt þetta tal um fátækt er að gera hann sturlaðan. Er þetta fólk til? hugsar Bjarni, er þetta ekki allt ein stór lygi? Hvernig stendur á að allir þessir peningar Tryggingastofnunar renni til fólks, sem ég hef aldrei séð? Enginn vina minna eða ættingja myndi niðurlægja sig við að sækja einhvern 200 þúsund kall á mánuði í TR. Hvaða fólk er þetta eiginlega, er það ekki bara einhver skáldskapur? Verðum við ekki stoppa þetta? Aðferð Bjarna er ekki að lýsa yfir stríði gegn fátækt með því markmiði að útrýma fátækt. Hann vill leggja í stríð við hina fátæku, sannfærður um að hann muni sanna að þau eru bara alls ekkert fátæk. Í veröld Bjarna er enginn fátækur, fólk lýgur upp á sig fátækt, en í raun er bara enginn fátækur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“