fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Nú sýður á Vilhjálmi sem sakar útgerðarmenn um lögbrot: „Íslenskur sjávarútvegur hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 3. október 2019 17:00

Vilhjálmur Birgisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sýður á Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness og varaforseta ASÍ, en líkt og kunnugt er var 60 starfsmönnum Ísfisks sagt upp á Akranesi í vikunni.

Vilhjálmur vandar sjávarútveginum ekki kveðjurnar og segir nánast öll þorp hafa orðið fyrir barðinu á græðginni og bendir á að störfum í fiskvinnslu hafi fækkað um 6700 manns á síðustu 25 árum:

„Það er þyngra en tárum taki að horfa uppá hvernig íslenskur sjávarútvegur hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar vítt og breitt um hinar dreifðu byggðir þessa lands. Nánast öll sjávarþorp og bæir hafa orðið fyrir barðinu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Öll vitum við hvernig einstaka útgerðarmenn hafa í gegnum árin og áratugina ekki vílað fyrir sér að selja kvótann frá sér og labba í burtu með jafnvel milljarða króna í vasanum,“

segir Vilhjálmur og er hvergi nærri hættur:

„Þessir sömu útgerðarmenn víla ekki heldur fyrir sér að skilja fólkið og heilu sveitarfélögin eftir bjargarlaus þar sem stór hluti lífsviðurværis fólksins og sveitarfélaganna er kippt í burtu á einni nóttu. Eins og áður sagði eru fjölmörg þorp og sveitarfélög á landsbyggðinni sem hafa lent í klónum á græðgisvæðingunni í kringum framsalið á aflaheimildum og sum þessara sveitarfélaga hafa ekki enn jafnað sig eftir að allur kvótinn hefur verið tekin í burtu í skjóli græðginnar.“

Gangi þvert gegn lögum

Vilhjálmur bendir á að samkvæmt 1. grein laga um stjórn fiskveiða séu nytjastofnar á Íslandsmiðum sameign íslensku þjóðarinnar og að markmið lagaanna sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu:

„Takið eftir, tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu! Hvað skildu útgerðarmenn vera oft búnir að kolbrjóta þessa lagagrein? Mér er mjög hugleikið hvernig farið hefur verið með okkur Akurnesinga hvað þetta varðar, en ítreka að fjölmörg önnur sveitarfélög hafa einnig farið gríðarlega illa út úr þessu kerfi.“

Stórfelld fækkun

Vilhjálmur nefnir að árið 2004 störfuðu 350 manns við veiðar og vinnslu á Akranesi hjá Haraldi Böðvarssyni og sama ár hefðu 170 þúsundum tonnaverið  landað í Akraneshöfn. Hafi fyrirtækið 2,2 milljarða í laun:

„Í dag er allt farið! Hvar er samfélagsleg ábyrgð útgerðarmanna? Og munum að markmið laganna er m.a. að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Hugsið ykkur að fyrir 25 árum þá störfuðu 9600 manns í fiskvinnslu á Íslandi en árið 2018 var þessi tala komin niður í 2900 sem þýðir að fiskvinnslustörfum í fiskiðnaði hefur fækkað um 6700 á 25 árum!“

Vilhjálmur viðurkennir að tækniframfarir eigi sinn þátt í þróuninni, en sé þó ekki eina skýringin:

„Hefur samþjöppun á aflaheimildum verið gríðarleg á undanförnum árum þar sem stórhluti aflaheimilda er kominn á örfáar hendur. Einnig er með algjörum ólíkindum að við skulum heimila að verið sé að flytja 42 þúsund tonn af óunnum fiski erlendis,“

segir Vilhjálmur og bendir á að það gangi einnig gegn 1. grein laga um stjórn fiskveiða.

„Er verið að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu með því að flytja 42 þúsund tonn óunninn á erlenda markaði? Nei að sjálfsögðu ekki og ljóst að ef þessi 42 þúsund tonn yrðu unnin hér á landi væri hægt að skapa hundruð fiskvinnslustörf fólkinu og sveitarfélögunum til mikilla hagsbóta.“

Sérhagsmunir í stað heildarhagsmuna

„Rifjum einnig upp að fram til september 2008 var svokallað útflutningsálag uppá 10% á allan fisk sem var sendur óunninn frá landinu, sem þýddi að ef útgerð flutti 100 tonn af óunnum fiski erlendis þurfti útgerðin að leggja 10 tonn í svokallað refsiálag. Þetta útflutningsálag var til að verja störfin vítt og breitt um landið tryggja atvinnu fólksins og sveitarfélögunum til hagsbóta, en á óskiljanlegan hátt var þetta álag fellt á brott í september 2008 af stjórnmálaflokkum sem horfa fyrst og fremst á sérhagsmuni heldur heildarhagsmuni,“

segir Vilhjálmur og kallar eftir endurskoðun á lögunum:

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að það verður að kalla eftir endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða eins og stjórnmálamenn tala um í hvert sinn sem útgerðamenn skilja eftir sig blóðuga slóð í hverju sveitarfélaginu vítt og breitt um landið með tilheyrandi atvinnumissi, en þetta gaspur stjórnmálamanna varir því miður einungis rétt í nokkra daga og svo er allt gleymt! Þetta er óþolandi staða, en það fyrsta sem Alþingi getur gert er að koma á þessu 10% útflutningsálagi þannig að ekki sé verið að flytja atvinnu frá landinu til annarra landa. Við eigum að nýta allar okkar auðlindir til atvinnuuppbyggingar og atvinnusköpunar en það gerum við ekki með því að flytja 42 þúsund tonn af óunnum fiski erlendis. Verjum atvinnuna, fólkinu, sveitafélögunum og okkur öllum til hagsbóta!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn