fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Hver á að passa barnið mitt?

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 27. október 2019 10:31

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Baldursdóttir ritar:

Dagforeldrar er stétt sem meirihlutinn er að verða búinn að ganga endanlega frá löngu áður en nægt framboð er af plássum á ungbarnaleikskólum. Úr stéttinni er stórflótti. Enn er talsverður tími þangað til ungbarnaleikskólar verða nógu margir til að geta annað eftirspurn. Skynsamlegt hefði því verið ef skóla- og frístundarráð hefði fundið leiðir í samvinnu við dagforeldra til að styrkja dagforeldrastéttina í það minnsta þangað til að ungbarnaleikskólar eru orðnir raunhæfur valkostur fyrir foreldra í Reykjavík.

Dagforeldrastéttin má ekki deyja út þar sem það munu alltaf verða einhverjir foreldrar sem velja dagforeldra umfram ungbarnaleikskóla. Staðan í dag er slæm. Foreldrar geta ekki verið öruggir með að fá pláss fyrir barn sitt hjá dagforeldri óháð því hvenær á árinu barnið fæðist. Ýmist vantar börn eða vöntun er á dagforeldrum. Foreldrar eru í sífelldri spennu og starfsöryggi dagforeldra er alvarlega ógnað.

Dagforeldrum hefur verið lofað hinu og þessu í gegnum tíðina sem ekki hefur verið efnt. Flokkur fólksins lagði fram tillögu í borgarráði 10. október 2019 um að farið yrði í sérstakt átak til að tryggja starfsöryggi dagforeldra og að beitt yrði til þess öllum tiltækum aðferðum og leiðum. Dagforeldrar hafa sjálfir verið duglegir að benda á lausnir en á þær hefur ekki verið hlustað.

Bilið óbrúað

Bilið sem átti að brúa milli dagforeldra og ungbarnaleikskóla hefur ekki verið brúað. Á meðan verið er að brúa þetta margumrædda bil þarf að styðja við bakið á dagforeldrum ef stéttin á ekki að þurrkast út. Dagforeldrar sjálfir hafa nefnt leigustyrk til þeirra sem að leigja dýra gæsluvelli á vegum borgarinnar. Einnig að bjóða dagforeldrum sem að ekki eru með 4-5 börn viðbótarniðurgreiðslu til áramóta.

Fleiri hugmyndir hafa verið lagðar á borðið s.s. að dagforeldrar fái aðstöðustyrkinn sem var samþykktur en síðan ákveðið að yrði ekki greiddur í bráð. Þessi styrkur myndi hjálpa þeim dagforeldrum sem ekki hafa náð að fylla í plássin sín. Haustið sem nú hefur kvatt hefur verið einstaklega erfitt fyrir dagforeldra. Þeir vita ekki endilega hversu mörg börn eru hjá þeim í næsta mánuði.

Stundum bjóða leikskólarnir pláss með stuttum fyrirvara. Dagforeldrar geta því staðið uppi um mánaðamót með einungis hluta af laununum sem þeir gerðu ráð fyrir að hafa. Þeir dagforeldrar sem eru ekki með laus pláss geta síðan ekki tekið við nýjum börnum fyrr en eldri börnin komast inn á leikskóla. Leikskólar Reykjavíkurborgar innrita börn yfirleitt einungis að hausti og því er mjög erfitt að fá laust pláss hjá dagforeldri eða á ungbarnaleikskóla á öðrum tíma ársins en á haustin.

Kaldar kveðjur frá borginni

Það hefur verið farið illa með dagforeldrastéttina og það bitnað á foreldrum og börnum. Framkoma valdhafa borgarinnar í garð dagforeldra eru til skammar. Margir dagforeldrar hafa áratuga starfsreynslu hjá borginni. Sveitarfélagið Reykjavík hefur brugðist þessum hópi, stéttinni, foreldrum og börnum sem reiða sig á þjónustuna. Nágrannasveitarfélögin, flest hver, hafa staðið sig miklu betur þegar kemur að því að hlúa að dagforeldrum.

Haustið hefur verið sérlega slæmt fyrir dagforeldrana og verður vorið slæmt fyrir foreldrana. Í vor munu margir foreldrar spyrja „hver á að passa barnið mitt svo ég komist út að vinna“? Já hver á að passa börnin svo foreldrar komist til að vinna fyrir húsnæðislánum/leigu, fæði og klæði? Hvernig ætlar borgin, skóla- og frístundarráð að bregðast við þegar stór hópur af börnum fær ekki vistun og foreldrar komast ekki til vinnu?

Stórt er spurt en fátt er um svör.

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun