fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Segja Gísla ljúga og innheimta ólögleg smálán þvert á gefin loforð – Krefjast rannsóknar á háttsemi hans

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 31. júlí 2019 11:54

Gísli Kr. Björnsson héraðsdómslögmaður er fyrrverandi formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Mynd-Sjálfstæðisflokkurinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin hafa sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að enn berist þeim kvartanir vegna innheimtu á ólöglegum smálánum, þrátt fyrir loforð Almennrar innheimtu ehf. um hið gagnstæða. Er eigandi fyrirtækisins, lögmaðurinn Gísli Kr. Björnsson harðlega gagnrýndur:

„Neytendasamtökin telja fullreynt að höfða til samvisku Gísla Kr. Björnssonar lögmanns og eiganda Almennrar innheimtu ehf. Mikilvægt er að Lögmannafélag Íslands rannsaki hið fyrsta hvort háttsemi lögmannsins kunni að stríða gegn lögum eða siðareglum LMFÍ. Þar sem félagið tekur ekki við kvörtunum Neytendasamtakanna eru lántakaendur sem standa í stappi við Almenna innheimtu ehf. hvattir til að senda kvörtun á Lögmannafélag Íslands.“

Neytendasamtökin segja stóralvarlegt að enn sé verið að innheimta ólögleg smálán, þvert á gefin loforð:

„Ekkert að marka Almenna innheimtu ehf.? Ábendingar streyma enn til Neytendasamtakanna vegna innheimtu á ólöglegum smálánum enda ekki að sjá að Almenn innheimta ehf. hafi látið af framferði sínu þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Enn er lántakendum neitað um sundurliðun á kröfum og innheimta ólögmætra lána heldur áfram. Það er stóralvarlegt að innheimtufyrirtæki í eigu lögmanns (og er því ekki undir eftirliti FME) skuli komast upp með að neita að afhenda gögn um stöðu lántakenda sem í einhverjum tilfellum sýna að fólk er löngu búið að greiða upp sína skuld. En til þess er jú leikurinn gerður.“

Neytendasamtökin hafa dæmi undir höndum þar sem lántakandi var búinn að greiða 750.000 meira en honum bar og átti að greiða um 400.000 til viðbótar. Þegar viðkomandi gerði kröfu á Almenna innheimtu um endurgreiðslu hætti fyrirtækið frekari innheimtu og felldi niður kröfu sínu, segir í tilkynningunni.

Svikin loforð

Í frétt á vef Neytendasamtakanna segir:

Gísli Kr. Björnsson stjórnandi og eigandi Almennrar innheimtu ehf. hefur gefið það út að fyrirtækið innheimti ekki lengur ólögleg smálán. Þá fullyrðir hann að fyrirtækið hafi ávallt látið viðskiptavini sína fá sundurliðun á kröfum, sé þess krafist. Fullyrðingar Gísla stangast á við reynslu skjólstæðinga Neytendasamtakanna. Nú sem fyrr streyma inn til Neytendasamtakanna ábendingar og fyrirspurnir frá fólki sem hefur tekið smálán sem eru í innheimtu hjá Almennri innheimtu ehf. Fólk er krafið um greiðslur á ólögmætum vöxtum og himinháum vanskilakostnaði, en hefur í mörgum tilfellum verið látið borga margfalt meira en því ber. Almenn innheimta ehf. leikur enn þann ljóta leik að hóta fólki með skráningu á vanskilaskrá Creditinfo, stilla því upp við vegg og innheimta himinháan vanskilakostnað ofan á kröfur sem fyrir liggur að eru ólögmætar.

Afhenda ekki gögn

Athygli vekur að Almenn innheimta virðist gera allt til að flækja mál og tefja, meðal annars að áskilja sér 90 daga rétt til að afhenda sundurliðun yfir kröfurnar. Þá er fyrirtækið allt í einu farið að gera þá kröfu að fólk sendi mynd af persónuskilríki þrátt fyrir að hafa nægjanlega upplýsingar til að innheimta af því himinháar kröfur. Fengju lántakendur sundurliðun í hendur, kæmi líklegast í ljós að margar kröfurnar eru ólögmætar og hafi þegar verið greiddar margfaldlega til baka eins og mörg dæmi sanna.

Leikur lausum hala

Neytendasamtökin standa ráðþrota gangvart þessu framferði og muna ekki eftir jafn svínslegum viðskiptaháttum og aðför að hópi neytanda sem oft er veikur fyrir. Þá er með öllu óskiljanlegt að lögmaður skuli komast upp með innheimtu á ólöglegum lánum og að halda mikilvægum gögnum frá lántakendum. En erindi Neytendasamtakanna til Lögmannafélags Íslands vegna starfshátta Gísla Kr. Björnssonar var vísað frá vegna aðildarskorts.

Gerið kröfu um sundurliðun

Neytendasamtökin hvetja alla sem tekið hafa smálán eftir 2013 sem eru í innheimtu hjá Almennri innheimtu ehf. að senda eftirfarandi póst og fara fram á tafarlausa sundurliðun krafna. Þeir sem telja sig hafa greitt meira til baka en sem nemur lánsupphæð ættu ekki að greiða krónu í viðbót fyrr en sundurliðunin liggur fyrir. Afhendi Almenn innheimta ekki sundurliðun á kröfum eru lántakendur hvattir til að senda tölvupóst á á Lögmannafélag Íslands sem á að hafa eftirlit með sínum félagsmönnum, sjá texta hér að neðan.

Neytendasamtökin árétta að fólk greiði upphaflega lánsupphæð til baka, en ekki ólöglega vexti og vanskilakostnað.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt