fbpx
Föstudagur 13.desember 2024

Smálán

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Eyjan
23.04.2024

Í umræðum um störf þingsins í dag gagnrýndi Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, ríkisstjórnina harðlega fyrir að hafa ekki gengið í að breyta úreltu regluverki um innheimtu smálána. Sagði hann Ísland vera kjörlendi fyrir smálánafyrirtæki sem gerði „hákarlafyrirtækjum“ kleift að notfæra sér neyð fólks og græða á þeirri stöðu að fleiri og fleiri heimili hafi Lesa meira

Ásta Sigrún Helgadóttir: Fjárhagsleg heilsa fólks er samfélagslegt verkefni – fjárhagsvandræði algengasta orsök hjónaskilnaða

Ásta Sigrún Helgadóttir: Fjárhagsleg heilsa fólks er samfélagslegt verkefni – fjárhagsvandræði algengasta orsök hjónaskilnaða

Eyjan
25.11.2023

Fjárhagsleg heilsa fólks er samfélagslegt vandamál, enda eru fjárhagsvandræði algengasta orsök hjónaskilnaða í dag. Mikilvægt hlutverk embættis umboðsmanns skuldara snýr að fræðslu og forvarnarstarfi. Segja má að enn sé ekki að fullu búið að gera upp hrunið vegna þess að sumir upplifa sig enn sem fórnarlömb þess, segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Hún er Lesa meira

Smálánafyrirtækin enn að brjóta lög með ólöglegum vöxtum – Kallað eftir aðgerðum stjórnvalda

Smálánafyrirtækin enn að brjóta lög með ólöglegum vöxtum – Kallað eftir aðgerðum stjórnvalda

Eyjan
03.02.2020

Neytendasamtökin kalla eftir aðgerðum í yfirlýsingu á vefsíðu sinni, þar sem smálánafyrirtækið Kredia er sagt bjóða upp á ólöglega vexti, sem og önnur smálánafyrirtæki. Ný lög um neytendalán tóku gildi um áramót sem fólu meðal annars í sér að hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK) var lækkað úr 50% í 35%, auk stýrivaxta Seðlabanka Íslands: „Í Lesa meira

Neytendasamtökin telja frumvarp Þórdísar gagnslaust – Smálánastarfsemi lýst sem villta vestrinu -„Í rauninni alveg galið“

Neytendasamtökin telja frumvarp Þórdísar gagnslaust – Smálánastarfsemi lýst sem villta vestrinu -„Í rauninni alveg galið“

Eyjan
15.10.2019

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, lagði í gær fram á Alþingi frumvarp til laga sem beint er gegn ólöglegum smálánum. Meðal markmiða frumvarpsins er að koma í veg fyrir að lántökukostnaður vegna smálána fari fram úr því sem leyfilegt er samkvæmt íslenskum lögum. Lögin munu veita stjórnvöldum heimild til að fá upplýsingar Lesa meira

Segja Gísla ljúga og innheimta ólögleg smálán þvert á gefin loforð – Krefjast rannsóknar á háttsemi hans

Segja Gísla ljúga og innheimta ólögleg smálán þvert á gefin loforð – Krefjast rannsóknar á háttsemi hans

Eyjan
31.07.2019

Neytendasamtökin hafa sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að enn berist þeim kvartanir vegna innheimtu á ólöglegum smálánum, þrátt fyrir loforð Almennrar innheimtu ehf. um hið gagnstæða. Er eigandi fyrirtækisins, lögmaðurinn Gísli Kr. Björnsson harðlega gagnrýndur: „Neytendasamtökin telja fullreynt að höfða til samvisku Gísla Kr. Björnssonar lögmanns og eiganda Almennrar innheimtu Lesa meira

Kerfisfræðingur segir Neytendasamtökin með allt niður um sig varðandi smálánin: „Þarf ekki að endurreikna neitt“

Kerfisfræðingur segir Neytendasamtökin með allt niður um sig varðandi smálánin: „Þarf ekki að endurreikna neitt“

Eyjan
26.07.2019

Guðmundur Ásgeirsson, kerfisfræðingur, skrifar um viðbrögð Neytendasamtakanna við fregnum þess efnis að smálánafyrirtæki hyggist lækka vexti sína og starfa innan ramma laganna. Segir hann ekki allt sem sýnist í þeim efnum og segir hann fagnaðarlætin ótímabær, þar sem ekki liggi fyrir hvort fyrirtækin hyggist aðeins fara eftir íslenskum lögum, eða þeim dönsku, sem þau hafa Lesa meira

Neytendasamtökin fagna sigri gegn smálánafyrirtækjum – Sjáðu hvernig þú getur mögulega endurheimt peningana þína

Neytendasamtökin fagna sigri gegn smálánafyrirtækjum – Sjáðu hvernig þú getur mögulega endurheimt peningana þína

Eyjan
22.07.2019

Neytendasamtökin skoruðu fyrir helgi á Almenna innheimtu ehf. um að stöðva tafarlaust innheimtu á smálánaskuldum sem byggja á ólögmætum lánum, líkt og Eyjan greindi frá. Í yfirlýsingu í dag segjast Neytendasamtökin fagna því að smálánafyrirtæki hafi viðurkennt sök sína um ólöglega starfsemi, með lækkun vaxta niður fyrir löglegt hámark: „Smálánafyrirtækin sem hingað til hafa veitt Lesa meira

Neytendasamtökin fordæma Almenna innheimtu: „Vextir á smálánum eru margfalt hærri en heimilt er samkvæmt lögum“

Neytendasamtökin fordæma Almenna innheimtu: „Vextir á smálánum eru margfalt hærri en heimilt er samkvæmt lögum“

Eyjan
19.07.2019

„Neytendasamtökin skora á Almenna innheimtu ehf. að stöðva tafarlaust innheimtu á smálánaskuldum sem byggja á ólögmætum lánum. Fyrir liggur að vextir á smálánum eru margfalt hærri en heimilt er samkvæmt lögum. Þrátt fyrir það eru lántakendur krafðir um endurgreiðslu á ólöglegum vöxtum og ekkert virðist fá stöðvað innheimtufyrirtækið sem hefur tekið að sér að innheimta Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af