fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi til Miðflokksins og er í sögulegri lægð – Píratar bæta við eftir Birgittumálið

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 19. júlí 2019 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,0% og minnkaði um rúm þrjú prósentustig frá mælingu MMR í júní. hefur flokkurinn aldrei mælst með lægra fylgi hjá MMR, en hann mældist með 19.5 % í janúar árið 2016. Má ætla að umræðan um þriðja orkupakkann vegi þar þungt.

Hér að neðan má sjá þróunina á fylgi Sjálfstæðisflokksins frá 2009 til dagsins í dag:

Fylgi Pírata mældist 14,9% og hélst nær óbreytt frá síðustu mælingum. Þá jókst fylgi Miðflokksins um um tæp fjögur prósentustig milli mælinga og mældist nú 14,4%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 40,9% samanborið við 40,2% í könnun júnímánaðar.

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,0% og mældist 22,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 14,9% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 14,4% og mældist 10,6% í síðustu könnnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,5% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,3% og mældist 11,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,4% og mældist 7,7% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,8% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,3% og mældist 4,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 0,8% samanlagt.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,6%), myndu skila auðu (7,5%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2031 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. til 17. júlí 2019

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir