fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Drífa Snædal um hægri öfgar: „Aðeins samstaða alþýðunnar er sterkari“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 22. maí 2019 14:54

Drífa Snædal, forseti ASÍ Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drífa Snædal, forseti ASÍ, hélt ræðu á þingi ETUC í gær þar sem rætt var um þann kafla í aðgerðaráætlun ETUC sem fjallar um „Traustara lýðræði og betri framtíð í Evrópu fyrir vinnandi fólk“, samkvæmt tilkynningu.

Drífa byrjaði á að lýsa stuðningi við inngang áætlunarinnar og þá hugmyndafræði sem hún endurspeglar um að öfgar sem nú vaða uppi í Evrópu eru afleiðing af djúpstæðum vanda en ekki orsökin.

„Við ræðum hvernig við getum varið og stuðlað að auknu lýðræði. Öfgarnar birtast með mismunandi hætti frá einu landi til annars en við vitum öll að fólk er allstaðar eins: „Við viljum öryggi, frið og réttinn til vinnu og sjá fyrir okkur sjálf.“

Drífa vísaði síðan til efnahagshrunsins á Íslandi fyrir rúmlega tíu árum þar sem sem bankarnir urðu gjaldþrota á innan við viku og afleiðingarnar voru fjölda atvinnuleysi, mikil verðbólga með hruni í kaupmætti og skuldum heimilanna. Í kjölfarið fylgdi mikil pólitísk ólga og andóf gegn hefðbundnum stjórnmálaflokkum og stofnunum samfélagsins.

Vinstri stjórn hélt hægriöfgastefnu niðri

Drífa benti hins vegar á hægri öfgastefna hafi ekki náð fótfestu á Íslandi enn sem komið er. Hún þakkaði það meðal annars þeirri staðreynd að eftir hrunið komst vinstri stjórn til valda sem með samtali við aðila vinnumarkaðarins setti sér markmið um að verja lágmarkslaun, félagsleg réttindi launafólks og velferðarkerfið í stað niðurskurðar og árása á réttindi launafólks sem var veruleikinn víða annar staðar í Evrópu.

„Við lögðum ekki mælikvarða kapítalismans og peninganna til grundvallar við mat á grunngildum okkar, hornsteinum velferðarkerfisins, sem var hlutskipti margra annarra ríkja sem urðu illa úti í kreppunni.“

Það væri líka eldsneyti þeirra hægri öfgaafla sem nú rísa víða, niðurskurður í velferðarkerfum, einkavæðing og veiking grunnstoðanna.

Drífa áréttaði að kjarninn í starfi stéttarfélaganna er verja þá velferð sem við höfum sameiginlega byggt upp og að gera engar málamiðlanir þegar kemur að velferðinni eða sameiginlegum grunnstoðum og hvernig við virðum réttinn til að taka ákvarðanir.

„Við stöndum frammi fyrir öflum sem vilja ræna okkur sameiginlegum auðlindum okkar, öflum sem eru þau næst öfugustu í heiminum, auðmagninu. Aðeins samstaða alþýðunnar er sterkari.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus