fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Ný sönnunargögn í Klaustursmálinu – Bára náðist á mynd daginn sem hún tók upp sexmenningana

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. febrúar 2019 15:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og fjallað hefur verið um hafa Klaustursþingmenn Miðflokksins sakað Báru Halldórsdóttur um að hafa dulbúið sig sem erlendan ferðamann áður en hún tók upp samtal sexmenninganna hið örlagaríka kvöld.

Það gefi til kynna að um vísvitandi og skipulagðan verknað hafi verið að ræða af hennar hálfu og stangist á við hennar upprunalegu frásögn, þar sem hún sagðist hafa tekið upp samtalið eftir að hafa blöskrað talsmáti þingmannanna.

Bára mynduð

Eyjan hefur í fórum sínum mynd sem tekin var af Báru 20. nóvember , sama dag og hún fór á Klaustur bar og heyrði þingmennina fara ófögrum orðum um náungann.

Hafði Bára áður komið við hjá Samtökunum 78, þar sem hún náðist á mynd. Aðrir fundargestir hafa verið máðir út af myndinni, að ósk Báru.

Ekki er að sjá á myndinni að Bára sé í dulbúningi sem erlendur ferðamaður, en tekið skal fram að Eyjan er ekki sérfróð um slíkan klæðnað.

 

Sjá einnig: Sjáðu alræmt dulargervi Báru:Myndir þú láta blekkjast? – Svona var hún klædd á Klaustri

Sjá einnigSegja Báru hafa dulbúið sig sem erlendan ferðamann – Var í svartri úlpu og gallabuxum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir