fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Theodóra leiðir sameiginlegan lista BF Viðreisnar í Kópavogi

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. apríl 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Theodóra Þorsteinsdóttir

Björt framtíð og Viðreisn stilla upp sameiginlegu framboði í  Kópavogi fyrir sveitastjórnarkosningar 26. maí n.k. undir slagorðinu Kópavogur til framtíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum:

„Á lista framboðsins er samhentur hópur fólks sem brennur fyrir málefni bæjarins og hefur fulla trú á því að hægt sé að gera góðan bæ betri! Listinn er skipaður jafn mörgum konum og körlum og er fléttulisti.

Þannig teljum við að hægt sé að koma sem flestum sjónarmiðum að.

Oddviti listans er Theodóra Þorsteinsdóttir. Hún er lögfræðingur að mennt og hefur getið sér gott orð sem bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs á yfirstandandi kjörtímabili.

Í öðru sæti er landsþekktur íþróttakappi, Einar Þorvarðarson fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik og framkvæmdastjóri HSÍ til 17 ára. Einar á djúpar rætur í bæjarfélaginu og var meðal annars einn af stofnendum íþróttafélagsins HK á sínum tíma.

Aðrir einstaklingar á listanum koma úr ýmsum áttum, eru á mismunandi aldri og búa víðsvegar í bæjarfélaginu en standa allir sem einn fyrir traust gildi sem sameinast í grunngildum framboðsins.“

Listi BF Viðreisnar í Kópavogi 2018
1. Theodóra Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs og lögfræðingur
2. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri og handboltaáhugamaður
3. Ragnhildur Reynisdóttir, ljósmóðir og sölustjóri
4. Hreiðar Oddsson, grunnskólakennari og skáti
5. Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og stjórnmálafræðingur
6. Friðrik Sigurðsson, flugrekstrarfræðingur og f.v. forseti sveitarstjórnar Norðurþings
7. Margrét Ágústsdóttir, viðskiptastjóri og þríþrautarálfur
8. Guðlaugur Þór Ingvason, sölumaður og nemi í MK
9. Auður Sigrúnardóttir, MA í klínískri sálfræði og verkefnastjóri
10. Andrés Pétursson, sérfræðingur og knattspyrnuáhugamaður
11. Soumia I Georgsdóttir, viðskiptafræðingur og atvinnurekandi
12. Sigvaldi Einarsson, fjármálaráðgjafi
13. Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, lögregluþjónn
14. Ólafur Árnason Klein, laganemi og formaður miðstjórnar Uppreisnar
15. Valéria Kretovicová, barnahjúkrunarfr. og áhugamanneskja um uppeldi og velferð barna
16. Elvar Bjarki Helgason, viðskiptafræðingur
17. Fjóla Borg Svavarsdóttir, grunnskólakennari
18. Kristinn Sverrisson, grunnskólakennari og þjálfari
19. Sigríður Sía Þórðardóttir, tölvunarfræðingur og forstöðumaður
20. Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur
21. Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur og formaður jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogs
22. Theódór Júlíusson, leikari og íþróttaáhugamaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt