fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Eyjan

Eygló Harðardóttir nýr stjórnarformaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 1. febrúar 2018 16:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eygló Harðardóttir

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað Eygló Harðardóttur, Lárus Sigurð Lárusson, Sigrúnu Elsu Smáradóttur og Teit Björn Einarsson, tilnefndan af fjármála- og efnahagsráðherra, í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hlutverk stjórnar sjóðsins er meðal annars að veita námslán, innheimta námslán, annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á námslánum, og annast fjármál sjóðsins og gerð fjárhagsáætlana. Stjórnin setur úthlutunarreglur sem eru lagðar fram til kynningar og staðfestar af ráðherra eigi síðar en 1. apríl ár hvert.

Eygló Harðardóttir er nýr formaður stjórnar en hún er fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna 2013-2016. Hún var alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn frá 2009-2017 og sat meðal annars í menntamálanefnd 2009 – 2011, og allsherjar- og menntamálanefnd 2011 og 2017. Eygló er með Fil.kand. próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla og hefur stundað framhaldsnám í markaðsfræði við Háskóla Íslands.

Lárus Sigurður Lárusson er nýr varaformaður stjórnar en hann hefur meistarapróf í lögum auk málflutningsréttinda og starfar sem lögmaður hjá Lögmönnum Sundagörðum. Áður var hann lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu og þar áður hjá Persónuvernd. Lárus hefur einnig verið gestafyrirlesari um málefni persónuverndar og meðferð persónuupplýsinga hjá lækna- og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og hjá tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Að auki hefur hann sinnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.

Sigrún Elsa Smáradóttir er matvæla og viðskiptafræðingur MBA. Sigrún starfaði sem markaðsstjóri 1996-2008 og var varaborgarfulltrúi og borgarfulltrúi 1998-2010. Hún hefur gengt formennsku í leikskólaráði Reykjavíkurborgar auk þess að hafa m.a. setið í menntaráði, íþrótta- og tómstundaráði, framkvæmda og eignaráði, umhverfisráði, stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og stjórn Faxaflóahafna. Sigrún Elsa hefur einnig setið í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur, stjórn Lánatryggingarsjóðs Kvenna og var varamaður í bankaráði Seðlabankans. Í dag starfar Sigrún Elsa sem framkvæmdastjóri Iceland Exclusive Travel.

Teitur Björn Einarsson er skipaður samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra. Hann hefur lokið prófi í lögum auk málflutningsréttinda. Teitur var alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2016-2017 og var aðstoðamaður fjármála- og efnahagsráðherra 2014-2016. Hann  hefur einnig starfað sem lögmaður hjá LOGOS og OPUS. Þá starfaði Teitur sem stjórnandi hjá Eyrarodda hf.  

,,Eitt af áherslumálum mínum sem mennta- og menningarmálaráðherra verður að bæta kjör námsmanna og að ráðast í endurskoðun á námslánakerfinu. Ég vil að sú vinna fari fram í samstarfi við námsmannahreyfingarnar þar sem lögð verður áhersla á jafnrétti til náms, skilvirkni og námsstyrkjakerfi að norrænni fyrirmynd,“

 

sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni

Ragnar Þór Ingólfsson: Átakið ekki bara í Reykjavík – uppbygging fram undan á landsbyggðinni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus