fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Gunnar Bragi skýtur til baka á Þorgerði Katrínu: „Augljóst að ráðherrann hefur ekki fylgst með“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 3. febrúar 2017 14:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Bragi Sveinsson fv. ráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Samsett mynd/DV

Fylgst var með samningaviðræðum útgerðarmanna og sjómanna í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu fyrir jól og var ráðuneytið í sambandi við deiluaðila. Þetta segir Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að setja lög á verkfall sjómanna þar sem miklir þjóðarhagsmunir séu í húfi. Sagði Þorgerður Katrín í morgun að það hefði verið æskilegt að koma ekki að tómu borði í ráðuneytinu. Gunnar Bragi hafnar þessum orðum og segir ráðherra á flótta undan eigin ábyrgð. Bjartsýni hafi ríkt í ráðuneytinu um að samningar næðust um eða eftir síðustu jól, en nú eftir áramót sé orðið ljóst að ekki nást samningar:

Það kemur þó ekki á óvart að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra reyni að fría sig ábyrgð á framtaksleysinu. Augljóst er að ráðherrann hefur ekki fylgst með gangi viðræðna síðustu vikur. Líklega hefur tími ráðherrans farið í að efna til ófriðar um landbúnaðinn líkt og orðið er,

segir Gunnar Bragi:

Alvarlegastar eru þó yfirlýsingar ráðherrans í þingsal að útiloka sértækar aðgerðir til að liðka fyrir lausn málsins.

Sjómannadeilan á að vera forgangsverkefni stjórnvalda

Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins sagði í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að mikilvægt sé að leysa sjómannadeiluna án lagasetningar. Telur hún að sjómannadeilan eigi að vera forgangsefni stjórnvalda og það þurfi að meta þjóðhagslega tjónið strax:

Ríkisstjórnin getur ekki látið reka á reiðanum þegar helsta atvinnugrein landsins er í lamasessi og veldur þjóðarbúinu ómældu tjóni,

Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins

segir Lilja. Sakar hún ríkisstjórnina fyrir það að vera óundirbúin og ekki hafa látið meta þjóðhagslegt tjón verkfallsins.

Atvinnuveganefnd fer fram á úttekt á áhrifum verkfallsins

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur farið fram á það við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gerð verði úttekt á þjóðhagslegum áhrifum sjómannaverkfallsins, er vonast til að gögn fáist frá ráðuneytinu í næstu viku. Vill nefndin að lagt verði mat á áhrif verkfallsins á sveitarfélög, einkum þau sem treysta á sjávarútveg. Dregnar verði fram upplýsingar um áhrif á tekjur sveitarfélaga og ríkissjóðs, hagvaxtarspár og þróun vinnumarkaðar. Mat verði lagt  á áhrif verkfallsins á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja á erlendum mörkuðum til lengri og skemmri tíma. Einnig verði metin áhrif verkfallsins á þriðja aðila, svo sem tekju- og atvinnumissir fiskvinnslufólks og starfsfólks í stoðgreinum sjávarútvegsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum