fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Eyjan

„Það er gott að búa í Kópavogi“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 9. desember 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar I. Birgisson. Mynd: Guðrún Þórs.

Bæjarstjórinn góðkunni, Gunnar I. Birgisson, hefur nú fest ævisögu sína á blað með dyggri aðstoð skrásetjarans Orra Páls Ormarssonar. Gunnar þekkja flestir sem hinn djúpróma bæjarstjóra Kópavogs, nú Fjallabyggðar, en hann var einnig þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs Kópavogs til margra ára. Þá þekkja allir hið sígilda slagorð, „Það er gott að búa í Kópavogi,“ sem Gunnar hefur gert ódauðlegt.

Saga Gunnars er um margt merkileg, ekki síst þegar horft er til ansi flókins fjölskyldumynsturs og uppvaxtarára hans, sem voru enginn dans á rósum, en á tímabili mátti vart á milli sjá hvaða sögu var um að ræða, Gunnars Birgissonar, eða Gunnars á Hlíðarenda. Hún er rakin í fyrstu persónu af festu og öryggi og fær lesandi þá tilfinningu að flest sé látið flakka, enda virðist það koma heim og saman við persónu Gunnars.

Stundum er vaðið úr einu í annað og virðast sumar málalyktir heldur snubbóttar, en samúðin með Gunnari fæðist snemma og slíkt fyrirgefst auðveldlega. Sagan er brotin upp með reglulegu millibili af sjónarhorni samferðamanna Gunnars, vinum, ættingjum og vinnufélögum. Slík innskot draga oft upp aðra mynd en lesandinn sjálfur hefur málað af viðfangsefninu og gefa því meiri dýpt. Vitanlega hættir slíkum útúrdúrum til að upphefja ímynd aðalpersónu bókarinnar með áherslu á hið jákvæða í fari viðkomandi, en til þess eru jú vinir og vandamenn. Bókin er nokkuð hefðbundin ævisaga að öðru leyti en heldur manni vel við efnið.

Bókin er vel skrifuð og flæðir vel enda Orri Páll einn af betri pennum landsins. Þá skín í gegn að Gunnar hefur húmor fyrir lífinu og sjálfum sér, sem er nauðsynlegt til þess að slíkar bækur séu skemmtilegar aflestrar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit