fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Eyjan

Franska þjóðfylkingin er blönk: Vantar 14 milljónir evra fljótt ef Marine Le Pen á að verða forseti

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 4. apríl 2017 11:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marine Le Pen vill verða næsti forseti Frakklands en áður þarf hún að finna sem fyrst fjármagn upp á 1,7 milljarð íslenskra króna til að kosta kosningabaráttuna.

Marine Le Pen leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar vill að Frakkland verði fyrir Frakka og að hún verði næsti forseti þeirra. Samkæmt skoðanakönnunum gæti hún haft sigur í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna sem fer fram sunnudaginn 23. apríl. Seinni umferðin er svo 7. maí og þá verður kosið milli tveggja efstu frambjóðenda úr fyrri umferðinni. Sá sem hlýtur meirihluta þar verður næsti forseti.

En nú er einn hængur á því að draumur Le Pen um forsetaembættið verði að veruleika. Flokk hennar skortir fjármagn til að kosta kosningabaráttuna sem er framundan. Bæði þarf að kosta baráttuna um forsetaembættið og síðan eru þingkosningar í Frakklandi í júní. Bloomberg-fréttastofan skrifar að kosningateymi Marine Le Pen hafi sent tylft bréfa til banka í Rússlandi, Bandaríkjunum, Ítalíu, Indónesíu, Bretlandi og í Frakklandi með lánaumsóknum. Þjóðfylkinguna vantar um 14 milljónir evra, sem svarar til 1,7 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi.

Þrátt fyrir að Þjóðfylkingin hafi reynt að fegra ímynd sína og draga fjöður yfir fortíð þar sem oft hefur reynst grunnt á almennum kynþáttafordómum og gyðingahatri þá virðist sú andlitslyfting ekki hafa dugað til að laða fjármagn að flokknum. Louis Aliot sem er nánasti ráðgjafi og sömuleiðis sambýlismaður Marine Le Pen segir að franskir bankar hafi þegar hafnað því að lána flokknum fé.

Kvittur hefur komist á kreik um að Þjóðfylkingin hafi í fyrrasumar krækt í fjármagn frá Rússlandi í formi þriggja milljóna evra (um 370 milljónir IKR) láns frá Strategy Bank í Moskvu. Franski vefmiðilinn Mediapart greindi frá þessu í síðustu viku og vísaði í skjöl frá Þjóðfylkingunni máli sínu til stuðnings. Gjaldkeri Þjóðfylkingarinnar hefur vísað þessu á bug sem tómu rugli, skjölin sýni ekki með neinum hætti að flokkurinn hafi fengið fé að láni frá þessum banka. Strategy Bank hefur nú verið sviptur bankaleyfi og Bloomberg-fréttastofunni hefur því ekki tekist að fá þetta staðfest þaðan.

Hvort sem þetta er rétt eða rangt þá hefur Þjóðfylkingin áður fengið lán hjá rússneskum bönkum. Það gerðist til dæmis árið 2014 þegar First Czhech Russian Bank lánaði flokknum níu milljónir evra (um 1,1 milljarður IKR).  Þessi baki ku hafa náin tengsl við Vladimir Pútín Rússlandsforseta.

Marine Le Pen hitti Vladimír Pútin í Kreml 24. mars síðastliðinn.

Tengsl Þjóðfylkingarinnar við Rússland hafa vakið áhuga þar sem Marine Le Pen hefur lýst sig andvíga viðskiptaþvingunum gegn Rússum og að hún telji að yfirtaka Rússlands á Krímskaga sé hið ágætasta mál. Hún mun einnig hafa lofað Vladimir Pútín forseta Rússlands því að hún muni berjast gegn viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gegn Rússlandi nái hún kjöri sem forseti. Marine Le Pen og Vladimir Pútín áttu fund í Moskvu þegar hún heimsótti Rússland fyrir um hálfum mánuði síðan. Þá sagði hún að fjármögnun kosningabaráttu Þjóðfylkingarinnar hefði hvergi borið á góma.

Í janúarmánuði var Marine Le Pen í New York þar sem hún leitaði meðal annars hófanna um lánafyrirgreiðslur. Þá sást til hennar í Trump Tower þar sem Donald Trump bjó áður en hann flutti í Hvíta húsið í Washington. Fátt bendir þó til að hún hafi verið þar sem gestur Trump eða hann tekið á móti henni.

Enn er óvíst hvort Þjóðfylkingunni takist að útvega það fé sem flokkurinn þarf.

Við höfum sent lánaumsóknir en bíðum enn eftir svörum. Þetta gengur hægt,

hefur Bloomberg-fréttastofan eftir Louis Aliot.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks