fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Alþjóðleg samtök kvenþingmanna halda ársfund sinn hér á landi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. febrúar 2017 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi innanríkisráðherra og borgarstjóri.

Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Silvana Koch-Mehrin, stofnandi Women in Parliaments Global Forum, undirrituðu síðastliðinn föstudag, 10. febrúar 2017, sameiginlega yfirlýsingu um að halda ársfund þessara alþjóðlegu samtaka kvenþingmanna á Íslandi í lok nóvember nú í ár.

Markmið samtakanna er að efla tengslanet kvenna á þingum og allar konur sem eiga sæti á þjóðþingum, eða á Evrópuþinginu, eiga rétt til aðildar.  Búast má við nokkur hundruð þátttakendum víðs vegar úr heiminum á ársfundinn sem verður vettvangur til að miðla reynslu af leiðum til að efla jafnrétti og þátttöku kvenna í stjórnmálum og á opinberum vettvangi.  Árangur Íslands í jafnréttismálum var forsvarsmönnum samtakanna innblástur til að leita samstarfs um að halda ársfundinn hér á landi.

Samhliða ársfundi Women in Parliaments Global Forum munu samtök kvenþjóðarleiðtoga, Council of World Women Leaders, halda fund sinn hér á landi.  Samtökin voru stofnuð af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, árið 1996 og er hún jafnframt heiðursfélagi Women in Parliaments Global Forum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv. ráðherra og borgarstjóri, er formaður stjórnar Women in Parliaments Global Forum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“