fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Eyjan

Ólafur aðstoðar Jón

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 19. janúar 2017 13:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur E JóhannssonÓlafur E. Jóhannsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytsins, en Ólafur hefur þegar hafið störf í ráðuneytinu.

Ólafur kemur úr atvinnulífinu til starfa í ráðuneytinu en undanfarin ár hefur hann verið forstöðumaður sölu- og samskiptasviðs hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Carbon Recycling International. Áður hefur hann starfað sem verkefnisstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur á sviði umsýslu- og almannatengsla og sinnti þar m.a. samskiptum við sveitarfélög.

Bakgrunnur Ólafs er jafnframt úr fjölmiðlum og almannatengslum og hefur hann rekið eigin starfsemi á því sviði fyrir ýmis fyrirtæki og samtök. Einnig starfaði hann sem fréttamaður hjá RÚV Sjónvarpi, Stöð 2 og Morgunblaðinu. Hann stundaði nám við lagadeild HÍ og á að baki margvísleg störf að félagsmálum.

Ólafur er kvæntur Írisi Erlingsdóttur, söngkennara í Söngskólanum í Reykjavík, og eiga þau þrjú uppkomin börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB