fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
433Sport

Gagnrýndi frammistöðu hans í rúminu með athyglisverðri samlíkingu – Hann svarar nú fullum hálsi

433
Miðvikudaginn 5. febrúar 2025 11:37

Claudia Bavel.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Iker Casillas hefur brugðist við á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að fyrrum klámstjarnan og nú OnlyFans-stjarnan Claudia Bavel skaut á hann.

Casillas er í dag 43 ára gamall en hann er einn besti leikmaður í sögu Spánar. Lék hann á sínum tíma yfir 700 leiki fyrir Real Madrid og 167 leiki fyrir spænska landsliðið. Vann hann EM með landsliðin 2008 og 2012 og HM 2010.

Á dögunum var því haldið fram að Bavel og Casillas ættu í sambandi og gagnrýndi hún þá fyrrum knattspyrnumanninn fyrir frammistöðuna í rúminu.

„Samband mitt með Iker Casillas var fyrst vinátta. Við fórum svo að hittast og var samband okkar opið til að byrja með, áður en við lokuðum því,“ sagði Bavel.

Iker Casillas á leikmannaferlinum.

„Mér líður eins og ég sé út undan. Iker veit hvað er á bak við þessar myndir. Ef þú spyrð mig hvernig hann var í rúminu segi ég að hann hafi verið betri fótboltamaður.“

Casillas hefur nú svarað fyrir sig með yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.

„Ég hef verið í kringum atvinnumennsku í knattspyrnu síðan ég var 14 ára, hef átt feril sem hefur veitt mér svo mikla ánægju og það sem mér þykir hvað mest vænt um er ástin og stuðningurinn sem ég hef fengið frá almenningi,“ segir Casillas í upphafi færslunnar.

„Þetta hefur þó líka búið til áhuga á einkalífi mínu sem ég hef alltaf reynt að halda fyrir mig. Ég hef samt aldrei látið undan þeirri pressu að opinbera eitthvað um einkalíf mitt. Ég hef beðið um virðingu og að mér sé haldið frá slúðri og orðrómum.

Það er erfitt að sætta sig við að einhverjir fari og tjái sig um mig eða mitt umhverfi. Fólk sem veit ekkert um mig finnst það geta tjáð sig um mitt líf. Þetta er ekki allt þess virði, bara til þess að fá athygli, það er ekki þess virði að gera þetta fyrir peningana eða frægð. Þetta kemur niður á mér, einhverjum sem er bara þekktur fyrir vinnu sína.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Arsenal gagnrýnir þá sem dæmdu Gyokores eftir fyrsta leik

Fyrrum leikmaður Arsenal gagnrýnir þá sem dæmdu Gyokores eftir fyrsta leik
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gummi Ben kom Hjörvari verulega á óvart í beinni útsendingu – Fékk gjöf frá manninum sem hann hefur gagnrýnt mest

Gummi Ben kom Hjörvari verulega á óvart í beinni útsendingu – Fékk gjöf frá manninum sem hann hefur gagnrýnt mest
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Útskýrir af hverju hann kvaddi Liverpool og tók óvænt skref í sumar

Útskýrir af hverju hann kvaddi Liverpool og tók óvænt skref í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu fyrsta mark Gyokores fyrir Arsenal

Sjáðu fyrsta mark Gyokores fyrir Arsenal
433Sport
Í gær

Sá yngsti í sögu félagsins til að leggja upp

Sá yngsti í sögu félagsins til að leggja upp
433Sport
Í gær

Gæti óvænt tekið hanskana af hillunni og spilað á HM 2026

Gæti óvænt tekið hanskana af hillunni og spilað á HM 2026
433Sport
Í gær

Engin rúta á Emirates í dag: ,,Viljum hræða andstæðinginn“

Engin rúta á Emirates í dag: ,,Viljum hræða andstæðinginn“
433Sport
Í gær

Gætu fengið tvær stjörnur frá Manchester

Gætu fengið tvær stjörnur frá Manchester