fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Umdeildi Ólympíu-breikdansarinn varð höfð að háði og spotti – Stendur keik á forsíðu eftir yfirhalningu

Fókus
Föstudaginn 25. október 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólympíufarinn ástralski, Rachael Gunn, er þekkt undir listamannanafni sínu, Raygun, en hún setti allt á hliðina þegar hún keppti á Ólympíuleikunum í breikdans. Hún var í kjölfarið höfð að miklu athlægi í netheimum, enda þótti áhorfendum ekki mikið til hæfileika hennar koma.

Hún varð eins þekkt fyrir búninginn sem hún kom fram í, áströlskum jogginggalla sem þótti eiga lítið erindi í dans sem er kenndur við hiphop-tónlist sem þykir einmitt vera hipp og kúl. Atriði Raygun á leikunum samanstóð af furðulegum sporum þar sem hún hoppaði meðal annars um eins og kengúra og skreið eftir gólfinu eins og slanga.

Nú hefur Raygun gengist undir yfirhalningu en hún sat fyrir á forsíðunni hjá tímaritinu Stella Magazine. Þar stendur dansarinn í glæsilegum kjól með hendur á mjöðmum líkt og hún sé að bjóða gagnrýnendum birginn. Fyrirsögnin á forsíðunni er: „Þið náðuð ekki að draga mig niður. Ykkur tókst ekki ætlunarverkið. Ég stend áfram með því sem ég gerði.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Stellar (@stellarmag)

Skemmst er að segja frá því að Raygun endaði ekki á verðlaunapalli á Ólympíuleikunum. Þess í stað var hún höfð að háði og spotti út um allan heim. Svo sem í spjallþættinum The Tonight Show með Jimmy Fallon.

Það kom því sem þruma úr heiðskíru lofti þegar Raygun fékk titilinn : Besti breikdansari í heimi af samtökunum World DanceSport.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 1 viku

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík
Fókus
Fyrir 1 viku

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan