

Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði, segir að banaslysið á Breiðamerkjurjökli í sumar hafi verið henni persónulegt áfall. Slysið varð seint í ágúst er ísveggur hrundi í jöklinum í 25 manna ferð í íshellaskoðunarferð og lést erlendur ferðamaður. Í kjölfaið spannst mikil umræða um að íshellaferðir yfir sumartímann væru hættuspil.
Steinunn fer yfir málið í langri Facebook-færslu og tekur síðan hvassyrt þátt í líflegum ummæluum undir færslunni. Steinunn segir:
„Ég ætla ekki að neita því að slysið sem varð á Breiðamerkurjökli var áfall fyrir mig persónulega, enda hefur stærsti hluti minnar vinnu síðustu 7 árin snúist að einhverju sem tengist atvinnustarfsemi á suðursvæði, þar með talið íshellaferðum. Það sem ég hafði oft kalla „worst case scenario“ var að raungerast. Það var ekkert lítið sem gekk á á öllum vígstöðvum og ég held að ég hafi aldrei unnið meira heldur en þessa viku 10 daga eftir þetta slys. Og ekki bara ég heldur við öll hér á svæðinu, hvort sem það er á skrifstofunni eða landverðir, og ýmisr aðrir innan þjóðgarðsins. Það hefur bókstaflega ekkert annað komist að heldur þetta (sem er ekkert frábært þar sem svæðið er stórt og verkefnin eru mörg).“
Í færslunni lýsir Steinunn, að hennar mati, óvönduðum vinnubrögðum fyrirtækja sem bjóða upp á íshellaskoðun og fer háðulegum orðum um starfsemina:
„Engu að síður blöskraði mér algjörlega framkoma manna 1. október þegar íshellaferðir hófust aftur. Það er eins og almenn skynsemi fái að fjúka þegar menn eru komnir með dollaramerkin í augun. Það er sennilega rétt að margur verður af aurum api. Eftir fréttaflutning síðustu daga er að minnsta kosti augljóst að öryggi gesta er ekki endilega forgangsatriði hjá öllum þeim sem stunda þessa tegund ferðamennsku.
Á sama tíma hverfur líka öll virðing fyrir náttúrunni. Ég geri mér fulla grein fyrir þeirri aðgengis vinnu sem þarf oft að eiga sér stað til þess að tryggja öryggi gesta í íshellum og við aðrar ísmyndanir, en þegar „aðgengisvinnan“ er farin að felast í því að gas og hitablásarar eru notaðir til þess að bræða göng, rafstöðvar eru staðsettar ofan í sprungum til að knýja áfram hitablásara, olíubrúsar og keðjusagir um alla jökla, þá spyr maður sig hvort þetta sé í alvörunni þess virði? Er þetta bara það sem við viljum? Þetta eru ekkert tilbúin dæmi, bara það sem landverðir okkar rákust á fyrir um 2 vikum síðan þegar verið var að tengja saman tvo svelgi. Brotaviljinn er einbeittur, enda vinna þessir aðilar fyrst og fremst á kvöldin og á nóttunni þegar ekki sést til þeirra.“
Í umræðum undir færslunni bætir Steinunn heldur í nöturlegar lýsingar á íshellaskoðunarfyrirtækjum er hún skrifar:
„Íshellaferðir geta verið frábærar, en mér finnst standard margra fyrirtækja vera orðinn heldur neðarlega. Fyrir utan það að stór hluti þessara „íshellabíla“ eru aflóga druslur sem engin annar ferðaþjónustuaðili á Íslandi vill nota! Ég hef séð bíla á bílastæðinu við Jökulsárlón sem eru á aldri við mig!
Myndirnar sem ég hef séð síðustu daga af allt að 200 manns í röð til að komast inn í drullugan helli – og fólki virðist vera alveg sama. Bara koma sem flestum inn í hellinn og græða fullt af peningum.
Svona færibandaferðir eru svo mikið að skemma fyrir þeim sem vilja bjóða upp á gæðavöru – það er bara ekki hægt þegar sum fyrirtæki geta boðið upp á lægra verð í krafti stærðar sinnar á markaði.“
Steinunn á síðan í áhugaverðum skoðanaskiptum við mann að nafni Brynjólf sem ber upp á stjórnendur Vatnajökulsþjóðgarð seinagang, þvermóðsku og valdamisbeytingu:
„Þið hafið vitað, notað og samþykkt „aðgengisvinnu“ undanfarna vetur, sem er framkvæmt svo að hægt sé að skoða hella og minnka áhættu fyrir gesti. Núna eru þetta allt í einu „nátturuspjöll“ sem fólk gleypir við sem ekki hefur farið þangað sjálft. Svo því sé haldið til haga þá er öll mannleg för bráðnuð og orðið að vatni sem gerð voru síðastliðinn vetur og því umræða um nátturuspjöll algjör áróður á mjög svo lágu plani einungis notuð til að slá ryki í augun á fólki sem ekki veit betur.“
Steinunn vísar þessum ásökunum á bug og telur eðlilegt að stjórnendur þjóðgarðsins bregðist við lögbrotum. Sjá nánar pistil Steinunnar og umræður með því að smella á tengilinn hér að neðan.