fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Tekur Sancho við af Mbappe?

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 30. júlí 2024 20:23

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins skrítið og það kann að hljóma þá gæti Jadon Sancho verið eftirmaður Kylian Mbappe sem kvaddi PSG í sumar.

PSG er að leita að sóknarmönnum fyrir komandi tímabil og samkvæmt L’Equipe er Sancho ofarlega á óskalistanum.

Sancho er leikmaður Manchester United en hann hefur lítið sem ekkert sýnt í rauðu treyjunni.

Sancho var lánaður til Dortmund í vetur og stóð sig ágætlega en framtíð hans á Old Trafford er í óvissu.

Það er ekkert grín að taka við af Mbappe sem skoraði 44 mörk á síðustu leiktíð áður en hann hélt til Real Madrid.

Sancho er 24 ára gamall og hefur fengið að spila með United á undirbúningstímabilinu í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur