fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Pressan

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Pressan
Miðvikudaginn 24. apríl 2024 07:00

Glímir þú við símafíkn?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir kannast eflaust við að eyða alltof miklum tíma í símanum og sumir kannast kannski við að vilja gjarnan draga úr þessum skjátíma sínum. En það virðist vera vandkvæðum bundið fyrir marga að gera það.

Í nýrri bók „Kig op“ veitir danski blaðamaðurinn Jakob Sorgenfri Kjær góð ráð um hvernig er hægt að ná aftur stjórn á skjátímanum en hann byggir þessi ráð á nýjustu vitneskju um símanotkun fólks og eigin reynslu.

Slíttu hinu líkamlega sambandi við símann heima hjá þér – Ekki hafa hann alltaf nærri þér, komdu honum út úr svefnherberginu og klósettinu!

Ekki nota símann þegar þú ert að tala við fólk eða hittir fólk. Veittu því athygli hver munurinn er á nærveru og athygli fólks.

Aftengdu allar, eða sumar, tilkynningar í öppunum í símanum. Notaðu „truflið ekki“ möguleikann á ákveðnum tíma dagsins eða alltaf. Það er hægt að gera undantekningar fyrir mikilvægt fólk.

Skildu símann eftir þegar þú ferð út í búð, í göngutúr eða hjólreiðatúr. Þetta mun veita huganum ró og hugsununum tækifæri til að leika lausum hala. Ef einhverjir verða að bíða í hálftíma eftir að ná sambandi við þig, þá lifa þeir það venjulega af.

Losaðu þig við þau öpp sem þú eyðir mestum tíma í. Þetta eru yfirleitt samfélagsmiðlar eða leikir. Flestir eiga tölvu sem þeir geta notað til að spila eða skoða samfélagsmiðla. Það krefst tíma og orku að opna tölvuna og þetta minnkar þann tíma sem er eytt við skjáinn.

Finndu eitthvað annað að gera. Lestu bók eða finndu þér ný áhugamál eða endurvektu gömul. Leitaðu að nýjum upplifunum og hittu nýtt fólk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 6 dögum

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm