fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fókus

Árlegt Kótilettukvöld Samhjálpar ber keim af 50 ára afmæli samtakanna

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. október 2023 15:19

Kótilettukvöld Samhjálpar 2022

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert er íslenskara og betra en kótilettur í raspi og það er sannkallaður afmælismatur. Samhjálp er 50 ára í ár og árlegt Kótilettukvöld samtakanna ber keim af þeim tímamótum. Að þessu sinni verður það haldið á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 19. október og nýstárlegar og spennandi uppákomur setja svip á kvöldið.  

Hlaðborð tækifærana  

Í fyrra gafst gestum á Kótilettukvöldinu tækifæri til að bjóða í margvíslega eigulega muni og hagnýta þjónustu á Þöglu uppboði. Það tókst einstaklega vel og í ár verður enn meira og áhugaverðara úrval að finna á uppboðsborðinu í forsalnum. Fallegar hönnunarvörur, listaverk eftir Jóhannes Geir, Línu Rut, Ragnheiði Jónsdóttur og Sigrúnu Eldjárn. Postulínssafngripir frá frægum verksmiðjum, íslenskt skart meðal annars frá Vera Design og ótalmargir eigulegir munir.  

Guðni Th. Jóhannesson forseti var heiðursgestur fyrir ári
Kótilettukvöld Samhjálpar 2022

Draumur tískuunnandans 

Í forsalnum verður einnig Pop Up Boutique með vönduðum tískufatnaði. Vandaðar ullarvörur, sjöl, slæður, fylgihlutir, fatnaður og fleira sem gleður augu og hjarta tískumeðvitaðra. Hönnuðir á borð við STEiNUNNI, Freebird, Sif Benedicta og Andrea by Andrea verða í boði ásamt ótalmörgum öðrum fallegum flíkum. Auk þess ætla söng- og leikkonurnar Salka Sól og Katrín Halldóra að teygja sig inn í fataskápa sína og gefa fatnað sem nýst gæti öðrum á sviði eða utan sviðs. Hér er tækifæri til að skapa sinn eigin sérstæða stíl.  Á Facebook-síðu Samhjálpar má sjá hluta af varningnum í Pop Up Boutique.

Gómsætur matur og góð tónlist 

En fastagestir Kótilettukvöldsins bíða alltaf spenntastir eftir að fá kótilettur og meðlæti. Aftur leggja matreiðslumeistarar úr kokkalandsliðinu okkur lið og matreiða kótilettur af sinni einskæru snilld. Tónlistin hefur ávallt skipað stóran sess á Kótilettukvöldi og í ár kemur landsþekkt tónlistarfólk fram og tekur góðkunn lög þar á meðal eru: Gréta Salóme, Páll Rósinkrans, Hrönn Svansdóttir og Óskar Einarsson. Veislustjóri verður Þóra Karítas Árnadóttir.  

Kótilettukvöld Samhjálpar 2022

Glæsilegir vinningar 

Miðinn á kótilettukvöldið gildir einnig sem happdrættismiði og verða ýmsir glæsilegir vinningar í boði, frábærar upplifanir, notalegar snyrtivörur og fleira sem gleður og gagnast. 

Bakhjarlar  

Kótilettukvöldið er mikilvægur hlekkur í fjáröflun fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Bakhjarlar Kótilettukvöldsins í ár eru:  Einhamar Seafood ehf., Marel Iceland ehf., Guðmundur Arason ehf. og Inter ehf. 

Allur ágóði af Kótilettukvöldinu rennur til víðtækrar starfsemi Samhjálpar þar sem uppbygging er á öllum stöðum. Endilega takið frá fimmtudagskvöldið 19. október og tryggið ykkur miða sem allra fyrst þar sem sætaframboð er takmarkað. Miðasala fer fram á Tix.is og miðaverð er kr. 9900.  

Kótilettukvöld Samhjálpar 2022
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar
Fókus
Í gær

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu
Fókus
Fyrir 2 dögum

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”
Fókus
Fyrir 3 dögum

Virtist snerta viðkvæman blett hjá Bonnie Blue um fjölskyldu hennar

Virtist snerta viðkvæman blett hjá Bonnie Blue um fjölskyldu hennar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fagnaði 60 ára afmæli bikiníklædd á ströndinni

Fagnaði 60 ára afmæli bikiníklædd á ströndinni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sögðu já í gær í Mexíkó

Sögðu já í gær í Mexíkó