fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband

Fókus
Laugardaginn 31. maí 2025 17:30

Úr myndbandinu við Aftur heim. Skjáskot/Youtube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víða um land þar á meðal í sjávarútvegsbænum mikla Grindavík. Hin árlega sjómannadagshátíð Grindvíkinga, Sjóarinn síkáti, var haldin í Reykjavík á síðasta ári af augljósum ástæðum en verður haldin á ný í Grindavík nú í ár og væntanlega er þetta liður í viðleitni Grindvíkinga við að endurreisa bæinn sinn. Af því tilefni hefur lagahöfundurinn Hanna Sigurðardóttir, sem sjálf er úr Grindavík, gert íslenskan texta við lagið From Now On úr kvikmyndinni The Greatest Showman sem hún tileinkar öllum Grindvíkingum og ber lagið, í þessari útgáfu, viðeigandi titil, Aftur heim. Í útgáfu Hönnu er einmitt sungið um þrá Grindvíkinga eftir því að komast aftur heim til sín.

Hátíðahöldin hafa raunar staðið í Grindavík síðan í miðri viku en hátíðin ber þó ekki hið hefbundna heiti og er látlausari en tíðkaðist áður en hinar miklu hörmungar dundu yfir íbúa bæjarins, fyrst í nóvember 2023.

Það er annar Grindvíkingur Tómas Guðmundsson sem flytur lagið ásamt kórnum Grindavíkurdætur en öll sem koma að flutningi lagsins og gerð myndbands við það eru Grindvíkingar.

Tómas segir um lagið á samfélagsmiðlum:

„Gleðilegan sjómannadag. Í hjartanu viljum við öll fara heim. Aðstæður eru mismunandi, verum góð hvert við annað. Þetta frábæra framtak á Hanna Sigurðardóttir skuldlaust, það er mér sannur heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni.“

Hanna hefur áður sent frá sér myndbönd og lög í tilefni Sjómannadagsins en líklega hafa fæst þeirra verið eins tilfinningaþrungið og þetta. Myndbandið er tekið í Grindavík og í því kemur fjöldi Grindvíkinga fram. Myndbandið við Aftur heim má sjá hér að neðan.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld