
Ísland tapaði illa fyrir Lúxemborg ytra í síðasta mánuði en liðið ætlar að gera betur á föstudag.
„Þetta er mjög spennandi. Við höfum verið mjög góðir á Laugardalsvelli í undankeppninni og eigum tvo heimaleiki núna. Vonandi tökum við sex stig,“ sagði Ísak við 433.is.
„Það eina sem við hugsum um núna er hefnd. Leikurinn í Lúxemborg var klárlega ekki nógu góður og við ætlum að bæta upp fyrir það.“
Gylfi Þór Sigurðsson er snúinn aftur í íslenska landsliðið eftir langa fjarveru og var Ísak spurður út í hvernig honum litist á að spila loks með honum.
„Það leggst mjög vel í mig að spila með honum. Minn fyrsti landsleikur er eftir síðasta landsleik hans svo ég hef misst af honum alveg síðustu tvö ár,“ sagði Ísak.
„Það er geggjað að fá hann aftur inn í hópinn. Hann hefur auðvitað gert allt með íslenska landsliðinu, farið á HM og EM. Að læra af líklega besta landsliðsmanni sögunnar er geggjað fyrir svona ungan strák.“
Ítarlegt vital við Ísak er í spilaranum.