Félagarnir Bjarki Viðarson og Aron Mímir Gylfason standa bak við hlaðvarpsþáttinn Götustrákar sem hýstur er á hlaðvarpsveitunni Brotkast. Bjarki og Aron, sem betur eru þekktir undir Twitter-nöfnum sínum, Jeppakall 69 doperman Rakki og Ronni Turbo Gonni, lifðu og hrærðust í undirheimunum höfuðborgarinnar um árabil en hafa snúið blaðinu við og feta nú beinu brautina. Ætlun þeirra með hlaðvarpinu er að gefa hlustendum innsýn inn í þennan miskunnarlausa heim og ekki síður ráð um hvernig foreldrar geta passað upp á börnin sín varðandi stafrænar hættur.
Í nýjasta þættinum fengu Götustrákarnir til sín umdeildan einstakling sem heldur úti Tiktok-reikningnum Barnaperrar exposed, þar sem, eins og nafnið gefur til kynna, er flett ofan af barnaníðingnum og þeir nafn- og myndbirtir. Aðferðafræðin er umdeild en sá sem stendur á bak við reikninga þar sem hann þykist vera börn undir lögaldri á samfélagsmiðlinum Snapchat og þannig komist í samband við eldri einstaklinga, sem hafa illt í hyggju.
Í viðtalinu er farið yfir þennan myrka afkima samfélagsins en stjórnandi reikningsins telur að níðingar á Íslandi séu mun fleiri en fólk gerir sér grein fyrir.
Þá eru lesin upp skilaboð og vinabeiðnir frá eldri mönnum á einn af reikningunum sem gefur sig út fyrir að vera 12 stelpa. Hringt er í þrjá aðila sem að eru spenntir að heyra í tólf ára stúlku og rætt stuttlega við þá.
„Finnst þér í lagi að senda tittlingamynd á 12 ára stelpu?“ spyr Bjarki einn meintan barnaníðing sem neitar því. Aðspurður hví hann hafi þá gert það segir viðkomandi að barnið hafi gefið í skyn að það væri áhuga á slíkum myndum frá eldri einstaklingi.
Klippu úr þættinum má sjá hér að neðan en til þess að sjá þáttinn í heild sinni er hægt að kaupa áskrift á www.brotkast.is.