fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Pressan

Harry varpar sprengjum í nýrri bók: Vilhjálmur „sló mig í gólfið“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. janúar 2023 05:28

Forsíða Spare. Mynd:Penguin

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir bíða spenntir eftir útkomu æviminninga Harry prins sem verður gefin út í næstu viku. Óhætt er að segja að Harry muni varpa sprengjum í bókinni og má telja líklegt að samband hans við aðra meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar muni ekki batna við útgáfu bókarinnar.

The Guardian hefur komist yfir eintak af bókinni þrátt fyrir miklar öryggisráðstafanir í tengslum við útgáfu hennar.

Blaðið birti umfjöllun um bókina í nótt og þar kemur meðal annars fram að í bókinni segi Harry frá deilum við Vilhjálm bróður sinn sem enduðu með átökum.

Þetta á að hafa gerst heima hjá Harry í Lundúnum 2019. Segir Harry að Vilhjálmur hafi sagt Meghan, eiginkonu Harry, vera „erfiða, dónalega og óþægilega“.

Orðaskak þeirra bræðra færðist í aukana að sögn Harry og endaði með að Vilhjálmur „greip í hálsmálið á mér, eyðilagði hálskeðjuna mína og sló mig í gólfið“.

Hann segist hafa hlotið sýnilega áverka við þetta því hann lenti á bakinu á matarskálum hundsins og fékk áverka við það.

Bókin heitir Spare og kemur út í næstu viku.

Í umfjöllun The Guardian segir að bókin sé áhugaverð og að kaflinn, þar sem Harry segir frá deilunum við Vilhjálm, sé mjög athyglisverður. Í honum segir Harry að ástæðan fyrir heimsókn Vilhjálms hafi verið þær „hörmungar“ sem áttu sér stað á milli bræðranna og bresku slúðurblaðanna. Vildi Vilhjálmur ræða um þetta en Harry segir að Vilhjálmur hafi verið reiður þegar hann kom heim til sín Eftir að hann hafði gagnrýnt Meghan svaraði Harry honum og úr varð rifrildi þar sem þeir létu ókvæðisorðum rigna yfir hvorn annan.

„Þetta gerðist svo hratt. Mjög hratt. Hann greip í hálsmálið, eyðilagði hálskeðjuna mína og sló mig í gólfið. Ég lenti á skál hundsins sem brotnaði og hlutar úr henni stungust inn í mig. Ég lá ringlaður á gólfinu í smá stund, síðan stóð ég upp og bað hann um að fara,“ segir Harry.

Hann segir að Vilhjálmur hafi beðist afsökunar þegar hann fór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skaut lögreglumann með lásboga

Skaut lögreglumann með lásboga
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“