fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
Eyjan

Boðar væntanlega til þingkosninga í Danmörku í dag

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 5. október 2022 06:59

Mette sjálf mun ekki mæta fyrir dóminn. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt bendir til að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, boði til þingkosninga í dag. Í sumar gaf Radikale Venstre, sem er stuðningsflokkur minnihlutastjórnar Jafnaðarmanna (flokks Frederiksen) frest til upphafs þings nú í október til að boða til kosninga. Að öðrum kosti myndi flokkurinn leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina.

Ljóst er að ríkisstjórnin þarf á stuðningi Radikale Venstre að halda og því kemst Frederiksen ekki hjá því að boða til kosninga. Þing var sett í gær og reiknuðu margir með að þá myndi Frederiksen tilkynna um kosningar á næstunni en það gerði hún ekki.

Sofie Carsten Nielsen, formaður Radikale Venstre, sagði í gær að flokkurinn geti sætt sig við að Frederiksen boði ekki til kosninga fyrr en í dag, miðvikudag, en ef það verði ekki gert leggi hann fram vantrauststillögu á fimmtudaginn.

Frederiksen vill alveg örugglega ekki takast á við vantrauststillögu á þingi og því er reiknað með að hún boði til kosninga í dag. Það styrkir þessar væntingar að Jafnaðarmannaflokkurinn (Socialdemoktratiet) birti heilsíðuauglýsingar í öllum stærstu dagblöðum landsins í dag þar sem kosningar eru nefndar.

„Raunveruleikinn snýst um samvinnu. Kosningarnar snúast um hver getur látið það gerast,“ segir í auglýsingunni sem birtist meðal annars í Jótlandspóstinum, Berlingske, Ekstra Bladet, B.T. og Politiken.

Á mynd, sem fylgir auglýsingunni, stendur Frederiksen umkring formönnum Venstre, De Konservative, SF og Radikale Venstre. Í texta er hvatt til breiðrar samvinnu og „sameiginlegra lausna á þeim stóru áskorunum sem blasa við“.

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum getur staðan að kosningum loknum orðið mjög flókin því rauð blokk, sem eru vinstri flokkarnir og miðjuflokkar, og blá blokk, sem eru hægri flokkar og miðjuflokkar, eru með nánast jafn mikið fylgi. Ríkisstjórnarmyndun gæti því orðið erfið.

Það gæti farið svo að þeir fjórir þingmenn sem koma frá Grænlandi og Færeyjum geti ráðið úrslitum um hvernig ríkisstjórn verður mynduð en einnig gætu Moderaterne, sem er flokkur Lars Løkke Rasmussen, fyrrum forsætisráðherra og formanns Venstre, komist í lykilstöðu. Rasmussen hefur sagt að flokkurinn muni aðeins styðja ríkisstjórn sem er mynduð yfir miðjuna, sem sagt með aðkomu vinstri og hægri flokka.

Leiðtogar hægri flokkanna hafa útilokað að vinna yfir miðjuna en það hefur Frederiksen ekki gert og hefur að undanförnu sagt nauðsynlegt að unnið verði yfir miðjuna á næsta kjörtímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Gæsalifur og hvítvín

Óttar Guðmundsson skrifar: Gæsalifur og hvítvín
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – missir Viðreisn fram úr sér

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – missir Viðreisn fram úr sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Benedikt Gíslason: Arion banki er minnsti kerfislega mikilvægi bankinn á Norðurlöndum – mikil tækifæri í sameiningu við Kviku

Benedikt Gíslason: Arion banki er minnsti kerfislega mikilvægi bankinn á Norðurlöndum – mikil tækifæri í sameiningu við Kviku
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Sigurður Hólmar skrifar: Treystum fólkinu sem veit hvað það er að gera

Sigurður Hólmar skrifar: Treystum fólkinu sem veit hvað það er að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem er á móti frjálsri fjölmiðlun

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem er á móti frjálsri fjölmiðlun